Félag íslenskra bókaútgefenda gaf á dögunum út skýrslu um lestrarmenningu í sveitarfélögum landsins.
Gerður Kristný er höfundur skýrslunnar, sem ber heitið Lestur er lýðheilsa.
Við gerð skýrslunnar var rætt við fjölda starfsmanna, bæði á almennings- og skólabókasöfnum, auk starfsmanna leikskóla, fræðimanna og notenda bókasafna.
Á vef Félags íslenskra bókaútgefenda segir:
Í frásögnum viðmælenda birtist metnaður, hugmyndaauðgi og einlæg trú á gildi bóka. Fjallað er um lestrargleði barna, fjölbreyttan bókakost og bókasöfn sem staði fyrir samveru, fróðleik og ró í amstri dagsins. Jafnframt er bent á tækifæri til að efla lestrarmenningu með skýrari fjárveitingum, betra aðgengi að bókum og stuðningi við það fólk sem kveikir og nærir áhuga á lestri.
Lestur er lýðheilsa er bæði innlegg í umræðu um stöðu bókmenningar og hvatning til að byggja hana upp til framtíðar. Hún á erindi við sveitarstjórnarfólk, skóla, bókasöfn, útgefendur, foreldra og alla sem vilja að bækur og lestrargleði skipi ríkan sess í samfélaginu. Sæktu skýrsluna og kynntu þér hvernig við getum skapað fleiri tækifæri til lesturs fyrir fólk á öllum aldri.
Skýrsluna má nálgast hér á vef Félags íslenskra bókaútgefenda.