Upplýsinga- og miðlalæsi

Næsta morgunkorn Upplýsingar verður þann 9. febrúar kl. 9.00 – 10.00 í Borgarbókasafni – Grófinni.

Stafrænn veruleiki skipar sífellt meiri sess í daglegu lífi okkar. Stafrænum lausnum fylgja mikil tækifæri en líka stórar áskoranir og því mikilvægt að vera læs á mismunandi miðla og tækni.

Skúli B. Geirdal verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd fjallar um hið lögbundna hlutverk Fjölmiðlanefndar að efla miðlalæsi og auka skilning á hlutverki og notkun ólíkra miðla meðal almennings. Þá er framundan sérstök fræðsluvika tileinkuð upplýsinga- og miðlalæsi sem verður haldin í fyrsta skipti á Íslandi vikuna 13.-17. febrúar. Skúli mun kynna hana til leiks ásamt þeim verkefnum sem framundan eru á sviði miðlalæsis á Íslandi.

Húsið opnar kl. 8.45 með kaffiveitingum.

Að venju verður Morgunkornið sent út í streymi en þeir sem vilja mæta á staðinn eru beðnir um að skrá sig hér að neðan. Skráningu líkur 7. febrúar kl. 16.00.