Morgunkorn – Fjársjóðsleit í Gróf

Næsta Morgunkorn fer fram fimmtudaginn 26. nóvember kl. 14 og verður í streymi.

Bára Bjarnadóttir, sérfræðingur í barnastarfi á Borgarbókasafninu Grófinni, segir frá Fjársjóðsleitinni, nýju fræðsluverkefni fyrir 4. til 6. bekk sem hóf göngu sína í vor.

Markmið Fjársjóðsleitarinnar er að börn myndi jákvæða og ævintýralega tengingu við barnadeild safnsins samhliða þjálfun í að lesa kjalmiða og leita að gögnum.

Á bak við fræðsluna liggur kræklótt, skemmtilegt ferli þar sem tvinnast saman fagurfræði miðalda, fjársjóðskort, kjalmiðar, ævintýrahugarflug samstarfsfólks, Dewey-kerfið og frjótt samstarf með Eysteini Þórðarsyni teiknara.

Farið verður yfir ferli verkefnisins frá hugmynd að lokaafurð og litið verður til tækifæra og áskorana í framkvæmd fræðslunnar hingað til, en yfir 200 börn hafa þegar tekið þátt í Fjársjóðsleitinni.

Bára hefur starfað á Borgarbókasafninu síðan 2022 og eru helstu verkefni hennar í starfi sögustundir, krílastundir og skipulag og framkvæmd fræðsluverkefna fyrir börn og ungmenni á öllum skólastigum.

Bára útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, MS í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands og er þessa stundina diplómunemi við sjónlistakennsludeild Listaháskóla Íslands.

Um Fjársjóðsleitina á vef Borgarbókasafnsins.

Skráning á Morgunkornið er hér.