Search
Loading Events

Morgunkorn 23. janúar 2025

23 January kl 9:00 am - 10:00 am

Nýr kennsluvefur í upplýsingalæsi.

Kennsluvefurinn er ætlaður fyrir nemendur á háskólastigi og alla þá sem vilja efla færni sína í upplýsingalæsi. Námskeiðið er mikilvæg viðbót við þá upplýsingalæsiskennslu sem bókasöfn veita nú þegar. Nemendur læra að leita að upplýsingum, meta þær og nota á ábyrgan hátt.
 
Kennsluvefurinn er unninn af Vinnuhópi um upplýsingalæsi á íslenskum háskólabókasöfnum: Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn í Reykjavík, Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, Listaháskóli Íslands. Markmið vefsins er að samhæfa upplýsingalæsiskennslu á háskólastigi í samræmi við viðmið um æðri menntun og prófgráður á Íslandi. Kennsluvefurinn er í opnum aðgangi og er fjármagnaður með styrk úr Bókasafnasjóði.
 
 
Kynnar verða Irma Hrönn Martinsdóttir frá Háskólanum í Reykjavík og Tinna Lind Guðjónsdóttir frá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafn.

Borgarbókasafnið Gerðubergi

Gerðuberg 3-5
Reykjavík, 111 Iceland