Gervigreind í leik og starfi
Næsta morgunkorn Upplýsingar verður í fjarfundi 20. febrúar 2025 kl. 9:00-10:00.
Umræða um gervigreind hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum og sitt sýnist hverjum um ágæti hennar í námi og vinnu. En hvernig getum við nýtt okkur gervigreindina til að einfalda okkur hlutina, bæði í leik og starfi?
Andrea Ævarsdóttir reynir að svara þessari spurningu á 20 mínútum á næsta Morgunkorni Upplýsingar.
ATH – Morgunkornið verður í fjarfundi sem hægt er að tengjast hér fyrir neðan auk þess sem upptaka verður gerð aðgengileg síðar.