Föstudagurinn 29. maí 2026 verður helgaður málefnum bókasafna.
Kl. 9:30–12 verður Fræðslufundur skrásetjara haldinn á vegum Landskerfis bókasafna í Lóni – fyrirlestrasal í Þjóðarbókhlöðu. Skráning á fundinn fer fram hér.
Eftir hádegi verðum við svo í Menntavísindasafni í Súlnasal á 2. hæð í Sögu við Hagatorg 1.
- Kl. 13–13.50 Aðalfundur Upplýsingar
- Kl. 14–15.50 Vorráðstefna Notendahóps Gegnis
- Kl. 16–18 Vorgleði Upplýsingar
Skráningarblað fyrir viðburðina sem fara fram eftir hádegi er hér.
Athugið að ekki verður boðið upp á veitingar í hádeginu.
Hlökkum til að sjá ykkur öll!
Þau sem ekki komast á staðinn geta fylgst með aðalfundinum og vorráðstefnunni í streymi með því að smella á tengil sem verður hér þegar nær dregur.
Landskerfi bókasafna sér um upptöku á fræðslufundinum en hann verður ekki í streymi.
Dagskrá Fræðslufundar skrásetjara í Þjóðarbókhlöðu kl. 9.30–12
- Fundur settur – Þorsteinn G. Jónsson (Doddi), formaður skráningarráðs
- Gildi góðrar skráningar í gagnavinnslu og gæðaeftirliti – Sigrún Hauksdóttir
- Gervigreind í skráningu í Gegni – Kristín Lilja Björnsdóttir og María Bjarkadóttir
- Hlé
- Nafnmyndavinna á Landsbókasafni – Sigurgeir Finnsson
- Örfréttir og áminningar – Kristín Lilja Björnsdóttir
- Umræður og önnur mál
Skráning á fundinn á vef Landskerfis bókasafna hér.
Dagskrá Aðalfundar Upplýsingar í Sögu við Hagatorg kl. 13–13.50
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins – sjá 8. gr. https://upplysing.is/log/
a) Skýrsla stjórnar.
b) Skýrslur hópa og nefnda.
c) Reikningar félagsins.
d) Ákvörðun launa og þóknunar til stjórnarmanna.
e) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.
f) Árgjald.
g) Lagabreytingar.
h) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.
i) Kosning skoðunarmanna reikninga.
j) Kosning í fastanefndir til tveggja ára í senn.
k) Önnur mál.
Á fundinum verða Heiðursverðlaun Upplýsingar afhent.

