Þann 20. nóvember næstkomandi fer fram málþing Upplýsingar á Bókasafni Reykjanesbæjar.
Viðfangsefni málþingsins er miðlalæsi og bókasöfn, og verða kynnt ný miðlalæsisverkefni, fræðsluefni og nýútgefin gervigreindarskýrsla um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar.
Staður Bókasafn Reykjanesbæjar – Bergi
Stund 20. nóvember kl. 16–18
Dagskrá
Gervigreind til góðs. Ari Kristinn Jónsson, forseti Nýsköpunarsjóðs Atlantshafsbandalagsins (Nato Innovation Fund), kynnir nýja gervigreindarskýrslu sem starfshópur á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis gaf út í október. Ari er einn þeirra fimm sérfræðinga sem unnu skýrsluna en í henni er mat og tillögur starfshópsins um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar.
Miðlalæsi á Bókasafni Kópavogs. Lísa Zachrison Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs, segir frá miðlalæsisverkefnum og -viðburðum bókasafnsins.
Fræðsluefni um gervigreindarnotkun á höfundaréttarvörðu efni. Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambandsins, kynnir nýtt fræðsluefni um gervigreindarnotkun á höfundaréttarvörðu efni í skólum. Fræðsluefnið er unnið í samstarfi við Hagþenki og Félag íslenskra bókaútgefenda.
Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi. Starfsmenn Borgarbókasafns, þær Martyna Karolina Daniel, verkefnastjóri miðlunar og nýsköpunar, og Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs, kynna nýtt miðlalæsisverkefni.
Kynning á Bókasafni Reykjanesbæjar og leiðsögn um safnið.
Að málþingi loknu verður Jólagleði Upplýsingar frá kl. 18–20, einnig á Bókasafni Reykjanesbæjar.
