Haldið verður upp á 70 ára afmæli námsbrautar í upplýsingafræði við Háskóla Íslands miðvikudaginn 9. desember næstkomandi með hátíðardagskrá í Eddu – húsi íslenskunnar.
Af því tilefni er öllum áhugasömum boðið að taka þátt í dagskrá sem varpar ljósi á sögu greinarinnar, þróun hennar og framtíðarhorfur.
Upplýsingafræði hefur gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi í sjö áratugi og hefur þróast samhliða miklum breytingum á sviði miðlunar, þekkingarstjórnunar, bókasafna, upplýsingatækni og stafrænnar þjónustu.
Upplýsingafræðingar starfa á fjölbreyttum vettvangi þar sem aðgengi að upplýsingum, skipulag gagna og miðlun þekkingar skipta sífellt meira máli.
Afmælishátíðin hefst kl. 14 með setningu og ávarpi Rögnu Kemp Haraldsdóttur, dósents við Félagsvísindasvið, og Jamie Johnston, prófessors við Félagsvísindasvið.
Að því loknu flytja ávörp Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Magnús Þór Torfason, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.
Klukkan 15 hefjast pallborðsumræður um menntun á sviði upplýsingafræði, þróun greinarinnar og framtíðarsýn.
Þátttakendur eru Fiorella Foscarini, prófessor við Háskólann í Toronto og Isto Huvila, prófessor við Uppsalaháskóla.
Dagskránni lýkur svo með lokaorðum Jamie Johnston og Rögnu Kemp Haraldsdóttur.
Á eftir verður afmælismóttaka og léttar veitingar í Ými í Eddu þar sem gestum gefst tækifæri til að fagna þessum merka áfanga og hitta núverandi og fyrrverandi nemendur, starfsfólk og samstarfsaðila.
Dagsetning: Miðvikudagur 9. desember
Tími: Kl. 14–17
Staður: Fyrirlestrasalur á 1. hæð í Eddu, húsi íslenskunnar, Arngrímsgötu 5
