Search
pexels-nubia-navarro-(nubikini)-1517355

Upplýsing

Upplýsing er fagfélag á sviði bókasafns- og upplýsingafræða, m.a. með það að markmiði að gangast fyrir faglegri umræðu, efla skilning á mikilvægi íslenskra bókasafna og upplýsingamiðstöðva í þágu menningar, menntunar og vísinda og efla samvinnu þeirra.

Pósthólf 8865 | 128 Reykjavík  
Tölvupóstfang: [email protected]
Veffang: www.upplysing.is

Kennitala félagsins er 571299-3059

Lög og Siðareglur

Lög og siðareglur

Hér má lesa lög og siðareglur félagsins
Lesa

Aðalfundir

Aðalfundir

Hér má sjá fundargerðir, skýrslur og ársreikninga af aðalfundum félagsins
Lesa

Sjóðir

Sjóðir

Hér eru upplýsingar um sjóði félagsins
Lesa

Útgáfa

Útgáfa

Hér eru upplýsingar um útgáfu á vegum félagsins
Lesa

Félagsaðild að Upplýsingu

Félagsaðild að Upplýsingu veitir aðgang að margskonar fræðslu og fríðindum og tengir þig við samfélag einstaklinga sem starfar á sama sviði. 

Fríðindi skuldlausra félaga Upplýsingar (nemaaðild og einstaklingsaðild): 

  • Aðgangur að öllu félags- og faglegu starfi Upplýsingar
  • Áskrift að Bókasafninu (1 tbl. árlega)
  • Aðgangur að Morgunkornum Upplýsingar
  • Aðgangur að Jólagleði Upplýsingar
  • Áskrift að póstlista Upplýsingar – Fregnir
  • Réttur til að sækja um styrk í Ferðasjóð Upplýsingar á 3 ára fresti (sjá nánar úthlutunarreglur Ferðasjóðs)
  • 20% afsláttur af bókum og tímaritum í bókabúðum Eymundsson gegn framvísun félagsskírteinis
  • 20% afsláttur í IÐU Zimsen gegn framvísun félagsskírteinis
  • 20% afsláttur af Landsfundi Upplýsingar
  • 10% afsláttur af völdum námskeiðum hjá Promennt
  • 10% afsláttur í A4 gegn framvísun félagsskírteinis
  • Afsláttur af ráðstefnugjaldi ársþings IFLA (International Federation of Library Associations). Ráðstefnan World Library and Information Congress (WLIC) er stærsti viðburðurinn í bókasafnaheiminum.
  • Afsláttur af ráðstefnugjaldi ársþings IASL (International Association of School Librarianship). Ráðstefnan er sérstaklega áhugaverð fyrir skólasafnverði.

Árgjald

Árgjald einstaklinga er kr. 7.000

Árgjald nema í bókasafns- og upplýsingafræði er hálft einstaklingsárgjald eða kr. 3.500

Árgjald stofnana er tvöfalt einstaklingsárgjald eða kr. 14.000.

Eftirlaunafélagar og lífeyrisþegar geta óskað eftir að greiða hálft árgjald enda hafi þeir greitt félagsgjöld samfellt í að minnsta kosti 10 ár. Heiðursfélagar eru undanþegnir árgjaldi en njóta allra réttinda á við fullgilda félaga.

Einungis skuldlausir félagar njóta fullra réttinda og fríðinda félagsins. Hafi félagi ekki greitt félagsgjöld í tvö ár í röð er nafn hans tekið út af félagaskrá.

Stafræn félagsskírteini Upplýsingar 

Nú eru öll félagsskírteini Upplýsingar orðin stafræn. Auðvelt er að hlaða skírteininu niður í síma. Þeir sem ekki geta notað stafrænt kort, vinsamlega sendið tölvupóst á [email protected].

Kortin eru send á öll netföng samkvæmt félagaskrá. Því er mikilvægt að netföngin séu rétt skráð og félagsmenn láti vita þegar breyting verður á netfangi.

Vinsamlegast smellið á linkinn sem berst í tölvupósti til þess að sækja félagsskírteinið í síma. Best er að vista það og nota í veskisappi eins og Apple Wallet, eða í SmartWallet fyrir Android, í símanum.  Athugið að upplýsingar um fríðindi og afslætti er fást með framvísun skírteinisins eru á bakhliðinni.

Ef einver vandkvæði koma upp: [email protected]

Svona lítur kortið út í síma.

STJÓRN

Stjórn Upplýsingar 2024-2025
Formaður: Þórný Hlynsdóttir – formadur (hjá) upplysing.is
Varaformaður: Andrea Ævarsdóttir – varaformadur (hjá) upplysing.is
Gjaldkeri: Laufey H. Svavarsdóttir – gjaldkeri (hjá) upplysing.is
Ritari: Sigurlaug Jóna Hannesdóttir – ritari (hjá) upplysing.is
Meðstjórnandi:  Sif Sigurðardóttir – vefstjori (hjá) upplysing.is
 
Varamenn: 
Sigurgeir Finnsson
Stefanía Gunnarsdóttir
 
Vefstjóri:

Sif Sigurðardóttir – vefstjori(hjá)upplysing.is

Skoðunarmenn reikninga 
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir
Margrét Ásgeirsdóttir

NEFNDIR OG RÁÐ

Ritstjórn Bókasafnsins 2023-
Hallfríður H. Kristjánsdóttir (Lbs-Hbs) – ritstjóri
María Bjarkadóttir (Bókasafn Tækniskólans)
Tinna Guðjónsdóttir (Bókasafn Menntavísindasviðs HÍ). 

Netfang ritstjórnar er: [email protected] 
Skilafrestur efnis er 15. október ár hvert.

Höfundaréttarnefnd Upplýsingar 2018-
Erlendur Már Antonsson, Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
Þorbjörg Bergmann, bókasafn Hafnarfjarðar
 
Blái skjöldurinn 2023-2025 – Landsnefnd um varðveislu menningarminja
Tengiliður: Guðný Ragnarsdóttir, Árnastofnun og Guðný Kristín Bjarnadóttir, Bókasafni Reykjanesbæjar
  
Astrid Lindgren verðlaunin – ALMA
Tengiliður: Hólmfríður Björk Pétursdóttir, Amtsbókasafnið á Akureyri
 
Ráð á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytis:
 
Stjórn Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns 2018-
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir og Halldór Marteinsson til vara 
 
Bókasafnaráð 2021-2025
Tilnefndir af Upplýsingu 2021
Siggerður Ólöf Sigurðardóttir og Helgi Sigurbjörnsson
Margrét Sigurgeirsdóttir og Guðmann Kristþórsson til vara
 
Höfundarréttarráð 2021-2025
Örn Hrafnkelsson, Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni