Upplýsing boðar til aðalfundar félagsins fimmtudaginn 18. maí nk. Fundurinn hefst kl 17:00 og er haldinn í Menningarhúsinu Gerðubergi.
Stjórn félagsins óskar eftir tilnefningum í lagabreytingarnefnd og einnig tökum við á móti tilnefningum um heiðursfélaga Upplýsingar. Tilnefningar má senda á [email protected].
Við biðjum ykkur að skrá ykkur á aðalfund með því að smella hér.
Skráningu lýkur kl 12. á hádegi þriðjudaginn 16. maí.
Hér að neðan má sjá tilvísun í 8.gr. laga félagsins um aðalfund og mun dagskráin vera eins og hún kemur fyrir þar.
8. gr. – Aðalfundur
Aðalfund skal halda í maímánuði ár hvert. Til hans skal boðað skriflega með minnst tíu daga fyrirvara. Fundarboðinu fylgi dagskrá fundarins, ásamt tillögum um lagabreytingar, ef einhverjar eru.
Dagskrá aðalfundar:
a) Skýrsla stjórnar.
b) Skýrslur hópa og nefnda.
c) Reikningar félagsins.
d) Ákvörðun launa og þóknunar til stjórnarmanna.
e) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.
f) Árgjald.
g) Lagabreytingar.
h) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.
i) Kosning skoðunarmanna reikninga.
j) Kosning í fastanefndir til tveggja ára í senn.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis skuldlausir félagar.