Aðalfundur Upplýsingar verður haldinn í Menntaskólanum við Hamrahlíð,stofu 11 sem er í nýbyggingu skólans, þriðjudaginn 18. maí kl. 17:00. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum Upplýsingar – sjá nánar hér að neðan.Í lok aðalfundar verða afhent verðlaun fyrir bestu fræðibók liðins árs fyrir fullorðna. Þá tekur við heimsókn í sjálft bókasafn skólans því Ásdís opnar dyrnar á nýju húsnæði safnsins upp á gátt fyrir félaga Upplýsingar. Þar fáum við að fræðast um safnið, njóta léttra veitinga og góðs félagsskapar fram til kl. 19:00. Við hvetjum því alla félaga Upplýsingar til að mæta.
Samkvæmt 8. grein samþykkta Upplýsingar um aðalfund segir:
Aðalfund skal halda í maímánuði ár hvert. Til hans skal boðað skriflega með minnst tíu daga fyrirvara. Fundarboðinu fylgi dagskrá fundarins, ásamt tillögum um lagabreytingar, ef einhverjar eru.
Dagskrá aðalfundar:
a) Skýrsla stjórnar.
b) Skýrslur hópa og nefnda.
c) Reikningar félagsins.
d) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.
e) Árgjald.
f) Lagabreytingar.
g) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.
h) Kosning skoðunarmanna reikninga.
i) Kosning í fastanefndir til tveggja ára í senn.
j) Önnur mál.
Til þess að draga úr kostnaði, vinnu og óþarfa pappírsnotkun þá telur stjórn Upplýsingar að með útsendingu þessa tölvupóstar sé boðað bréflega til fundarins og verður því ekki sent fundarboð með pósti. Þá skal tekið fram að engar óskir hafa borist um lagabreytingar.