Bókasafnsdagurinn 8.september 2021

Lestur er bestur – fyrir jörðina

Taktu þátt

Markmið bókasafnsdagsins er tvíþætt:

  1. að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu
  2. að vera dagur starfsmanna safnanna.

Dagurinn okkar

Bókasafnsdagurinn er dagur þeirra sem starfa á bókasöfnunum. Við hvetjum öll bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar til þess að vera með. Ekki gleyma því að njóta dagsins og gera eitthvað fyrir eða með starfsmönnum.

Lestur er bestur

Mikilvægi lesturs og læsis er óumdeilanlegt. Bókasöfnin eru einn af hornsteinum lestrarmenningar Íslands og þess vegna leggjum við áherslu á læsi í slagorði bókasafnsdagsins: Lestur er bestur

Fyrir jörðina

Dagskrá Bókasafnsdagsins miðvikudaginn 8.september 2021

Morgunkorn á Bókasafnsdaginn

Að venju verður haldið sérstakt Morgunkorn að morgni Bókasafnsdagsins þar sem félagsmenn Upplýsingar og starfsmenn bókasafna koma saman, halda upp á Bókasafnsdaginn, þiggja léttar veitingar og hlusta á erindi í tilefni dagsins.

Við hefjum gleðina á morgunkaffi með covid sniði kl.8:30 en dagskráin sjálf hefst kl.8:45

Haldið í Náttúrufræðistofnun Íslands þann 8. september þar sem hægt verður að tryggja ábyrga fjarlægð milli einstaklinga.

  • 08:15 – Húsið opnar/morgunmatur
  • 8:40/8:45 –Formaður Upplýsingar kynnir
  • 8:45-9:15 – Sævar Helgi Bragason eða Stjörnu Sævar flytur erindi 
  • 9:15- 9:20 – Kynning á vali starfsfólks og gesta bókasafna þegar kemur að leslista í tengslum við þema dagsins
  • 9:20 – Afhending Hvatningarverðlauna Upplýsingar

Að venju verður Morgunkornið sent út í streymi en þeir sem vilja mæta á staðinn eru beðnir um að skrá sig hér að neðan.

Viðburðir á bókasöfnum 

Rík hefð er komin á að brjóta upp daginn og bjóða upp á einhverskonar uppákomur, viðburði eða sérstaka þjónustu í tilefni af Bókasafnsdeginum fyrir gesti safnsins. 

Við hvetjum söfn og stofnanir til að gera daginn frábrugðinn öðrum dögum, draga fram áhugaverðar bækur tengdar efni dagsins og vekjum athygli á starfinu, hlutverki safnanna og mikilvægi þeirra í samfélaginu.

Skoðaðu hugmyndir að viðburðum hér

 

Hvatningarverðlaun Upplýsingar

Hvatningarverðlaun Upplýsingar eru veitt annað hvert ár. Þau eru veitt starfsmönnum starfsstaða og/eða starfstöðum fyrir einstök verkefni er stuðla að aukinni nýbreytni og þróunarstarfi á bókasöfnum.

  • Markmiðið með verðlaununum er að:

    • veita bókasöfnum jákvæða hvatningu í starfi.
    • vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fram fer á vegum bókasafna.
    • stuðla að aukinni nýbreytni og þróunarstarfi.

Vinnureglur dómnefndar

Við val á verðlaunahafa skal skoða hvernig verkefnið fellur að neðangreindum markmiðum:

  • Um sé að ræða nýbreytni- og/eða þróunarverkefni sem ekki telst hluti af daglegu starfi viðkomandi starfsstaðar.
  • Verkefnið sé hvatning til eftirbreytni og góðra verka bæði innan viðkomandi starfsstaðar og utan.

Framkvæmd hvatningarverðlauna

 

  • Veitt eru ein verðlaun til einstaklings/a eða stofnunar. Hægt er að veita sérstakar viðurkenningar fyrir samstarfsverkefni.
  • Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna annað hvert ár.
  • Tilnefningar berist á sérstöku eyðublaðaformi sem er að finna á vef Bókasafnsdagsins.
  • Almenningur og starfsmenn safna geta tilnefnt verkefni til verðlauna.
  • Í dómnefnd sitja þrír fulltrúar, einn frá undirbúningshópi Bókasafnsdagsins, einn frá Samtökum forstöðumanna almenningsbókasafna og einn frá Upplýsingu.

Allir geta sent inn tilnefningar; starfsfólk sem og notendur bókasafna.

Náttúrulega góðar bækur

Taka þátt

Samfélagsmiðlar

Bókasafnsdagurinn nýtir samfélagsmiðla til hins ýtrasta til þess að vekja athygli á deginum og starfi bókasafna. Hér má sjá upplýsingar um net- og samfélagsmiðla sem notaðir verða á vegum Bókasafnsdagsins og hvernig söfn geta nýtt sér þá. Það er von undirbúningsnefndar að með samstilltu samfélagsmiðlaátaki muni okkur takast að gera Bókasafnsdaginn og bókasöfnin sjálf sýnileg enda er annað markmið dagsins að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu. Spurningar, tillögur eða annað sem við kemur samfélagsmiðlum og vefjum beinist til vefstjóra.

Taktu þátt á samfélagsmiðlun með því að nota myllumerki dagsins.

#bokasafnsdagurinn

Við hvetjum alla, unga sem aldna, til að tengjast á þeim miðlum sem þeir stunda.

Hugmyndir

Hugmyndir að uppákomum á Bókasafnsdaginn

  • Blása og hengja upp marglitar blöðrur til að skapa stemningu eins og í afmæli 
  • Upplestur fyrir börn/fullorðna
  • Hengja upp gátur/spurningar með textum úr bókum þar sem giska á hvaða bók þetta er
  • Bjóða í kaffi og bakkelsi
  • Ljóðaupplestur
  • Bjóða gestum að taka þátt í að skrifa sögu (samskrif)
  • Hafa kynningu á ákveðnum höfundum/bókaflokki
  • Skipuleggja að hafa fundi svo sem bókaklúbba þennan dag
  • Lifandi tónlist
  • Opin námskeið
  • Bjóða gestum í skoðunarferðir „baksviðs“ 
  • Bókmenntagöngur/bókmenntaumfjöllun
  • Skemmtun
  • Starfsmenn mæla með uppáhalds, eða að þeirra mati merkilegum bókum
  • Bókapakkar fyrir börn og fullorðna með áhugaverðum bókum
  • Staðreyndir og/eða fáránlegur fróðleikur prentað út og hengt upp á söfnunum.
  • Auglýsa frí kynningarskírteini
  • Auglýsa og halda örnámskeið á söfnunum á bókasafnsdaginn til að kynna starfsemi safnanna,  eins og leshringi o.fl.
  • Nýta sjónvarpskjáina til að kynna safnið eða bækur. T.d. að láta rúlla myndir af skemmtilegum myndum af öllu sem tengist bókum, bóklestri, bókasöfnum, bókaföndri, bókabílum o.s.frv.
  • Sérstakar uppákomur/efni á vefsíðu í tilefni dagsins
  • Gefa bókamerki / lestrardagbækur
  • Lestrarátak á safninu (hvað verða lesnar margar síður inni á bókasafninu á bókasafnsdeginum?)
  • Samkeppni um slagorð fyrir bókasöfn
  • Gefins bækur (þeir sem hafa sölubás gætu gefið þær þennan daginn)
  • Spurningakeppni (ekki pubquiz heldur libquiz)
  • Bjóða bæjarráðsfólki/sveitastjórnarfólki í formlega heimsókn
  • Setja einhver met innan safnsins
  • Brandarakeppni
  • Bjóða upp á að skrifa bréf til bókasafnsins sem hengt verður upp
  • Bjóða viðskiptavinum að koma kjósa 100 bestu bækurnar/ uppáhalds íslensku bókina sína / uppáhalds skáldsöguna
  • Sýning á gömlum munum, bókum og fleiru tengdu fyrri árum bókasafnsins
  • Myndlistasýning
  • Bókmenntagetraun
  • Sektarlaus dagur
  • Viðhorfskannanir
  • Bókmenntaþema, leggja áherslu á valda tegund bókmennta og stilla út.
  • Fá bókaútgefanda til þess að gefa verðlaun í happdrætti/spurningaleik

Undirbúningsnefnd Bókasafnsdagsins 2021

Fulltrúi Upplýsingar

Odda Helgadóttir

Bókasafns- og upplýsingafræðingur, Landsbókasafn Íslands Háskólabókasafn

Arnfríður Jónasdóttir

Deildarbókavörður, Menningarhús Kringlunni

Edda Hrund Svanhildardóttir

Forstöðumaður, Bókasafnið í Hveragerði

Margrét Sigurgeirsdóttir

Forstöðumaður, Bókasafn Garðabæjar

Ruth Ásdísardóttir

Umsjónamaður námsbókasafns, Lbs-Hbs

María Bjarkardóttir

Upplýsingafræðingur, Bókasafn Tækniskólans

Margrét Björnsdóttir

Forstöðumaður skólasafnaþjónustu, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur

Sigurbjörg Þorvaldsdóttir Long

Bókasafns- og upplýsingafræðingur, Landsbókasafn Íslands Háskólabókasafn

Vef- og miðlastjóri Upplýsingar

Óskar Þór Þráinsson

Verkefnastjóri, Mosfellsbær

Hafðu samband