Bókasafntækni – fyrsta útskrift úr Borgarholtsskól







Útskriftarnemar í bókasafnstækni. Á myndina vantar meðal annars Steinunni Óskarsdóttur sem fékk verðlaun fyrir bestan námsárangur. Myndina tók Bára Stefánsdóttir.
 
Námið í bókasafnstækni skipulagði Upplýsing og Samtök for­stöðumanna almenningsbókasafna í samvinnu við mennta­málaráðuneytið og Starfsgreina­ráð upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Dreifnámið var ætlað starfandi ófaglærðum bókavörðum. Varð­andi framkvæmd námsins var gengið til samstarfs við Borgarholtsskóla en Starfsmennta­sjóður félagsmálaráðuneytis styrkti verkefnið m.a. um þrjár m.kr. auk styrkja frá menntamála­ráðuneyti til skipulagningar námsins og námsefnisgerðar en styrkirnir höfðu úrslitaáhrif um uppbyggingu námsins. Reglulega hefur verið sagt frá framvindu mála í Fregnum. Fréttabréfi Upplýsingar.


Alls hófu 30 nemendur dreifnámið en 23 luku því. Þar af luku 12 nemendur grunn- og séráföngum í bókasafnstækni en 11 eiga eftir að ljúka hluta af almennum greinum.


Nú sem stendur starfar vinnuhópur þriggja bókasafnsfræðinga á vegum Prent­tækni­stofn­unar (skv. samningi við menntamálaráðuneytið) að því að undirbúa mat á starfsreynslu þeirra, sem lokið hafa grunn- og séráföngum, í samræmi við nám­skrá menntamálaráðu­neytis­ins um vinnustaðanám í bókasafnstækni en samkvæmt námskránni er gert ráð fyrir eins árs starfs­þjálfun. Í vinnuhópum eru þær Hulda Björk Þorkelsdóttir, Pálína Magnúsdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir.


Stjórn Upplýsingar óskar nýútskrifuðum nemum í bókasafnstækni til hamingju með áfangann og þakkar öllum þeim sem tóku þátt í að gera námið að veruleika fyrir þeirra fram­lag. Sérstakar þakkir eru færðar áhugahópi um menntun ófaglærðs starfs­fólks bókasafna, Borgarholtsskóla og höfundum námsefnis í bókasafnstækni.
Þórdís T. Þórarinsdóttir


Nemendur sem luku dreifnámi í bókasafnstækni frá Borgarholtsskóla:


Aðalbjörg Sigþórsdóttir
Bókasafni Hafnarfjarðar
 
Anna Kristín Guðmundsdóttir
Bókasafninu í Hveragerði
 
Anna Marta Valtýsdóttir
Bókasafni Reykjanesbæjar
 
Elísa Anna Friðjónsdóttir
Bókasafni Menntaskólans í Kópavogi
 
Eva I. Sumarliðadóttir
Héraðsbókasafni Borgarfjarðar, Borgarnesi
 
Eygló Guðjónsdóttir
Bókasafni Kópavogs
 
Gíslína Jensdóttir
Bókasafni Snorrastofu, Reykholti
 
Guðbjörg Harðardóttir
Bókasafni Hafnarfjarðar
 
Guðbjörg Hringsdóttir
Bókasafni Grundarfjarðar
 
Gunnhildur E. Kristjánsdóttir
Héraðsbókasafni Rangæinga, Hvolsvelli
 
Helen Hreiðarsdóttir
Bókasafni Kópavogs
 
Helga Stefánsdóttir
Bókasafni Mosfellsbæjar
 
Ingibjörg Þóroddsdóttir
Bókasafni Akraness
 
Kristjana Ólöf Örnólfsdóttir
Bókasafni Mosfellsbæjar
 
Margrét Björnsdóttir
Bókasafninu í Neskaupstað
 
Margrét Guðjónsdóttir
Héraðsbókasafni Rangæinga, Hvolsvelli
 
María Ögmundsdóttir
Bókasafni Reykjanesbæjar
 
Sesselja D. Tómasdóttir
Bókasafni Kópavogs
 
Sigríður I. Michelsen
Leiguliðum ehf.
 
Sigrún Jenný Guðmundsdóttir
Bókasafni Vestmannaeyja
 
Sigurbjörg Bjarnadóttir
Ekki í starfi
 
Stefanía Gísladóttir
Bókasafni Öxarfjarðar
 
Steinunn Óskarsdóttir
Bókasafni Fjölbrautaskóla Suðurlands  


Sjá einnig Morgunblaðið 28. des, bls. 38:
http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=798120
og frétt á vef Borgarholtsskóla http://www.bhs.is