Ýmis fræðslutækifæri standa starfsmönnum bókasafna til boða. Félagsmenn Upplýsingar eru hvattir til þess að nýta þau fjölbreyttu tækifæri sem í boði eru.
Hér að neðan má sjá vefstofur og málþing sem eru á dagskrá í september og byrjun október.
2.–4. sept. Norræn höfundaréttarráðstefna í Hörpu. Aðaláhersla ráðstefnunnar verður á höfundarétt og gervigreind. Nánari upplýsingar hér.
8. sept. Tengslaráðstefna Creative Europe fyrir bókasöfn. Fyrir þau sem hafa áhuga á samstarfi við evrópsk bókasöfn, kynna sér styrkjamöguleika og víkka tengslanetið. Nánari upplýsingar hér.
9. sept. IFLA Futures Club #4 vefstofa með Brewster Kahle, stofnanda Internet Archive. Skráning og nánari upplýsingar hér.
22. sept. Negotiating Qualitative Research Quality in the Age of AI vefstofa á vegum IFLA. Skráning og nánari upplýsingar hér.
22., 23., 29. og 30. sept. Libraries at the Heart of Europe vefstofur á vegum Europe Challenge. Nánar um verkefnið hér og skráning á vefstofurnar hér.
28. sept. Bókasafnsdagurinn fræðsluerindi á Bókasafni Hafnarfjarðar og í streymi. Þema ársins 2026 er Lestur er bestur – á öllum aldri. Nánari upplýsingar væntanlegar.
2. okt. Beyond Open Access: Open Science Across the Entire Research Cycle vefstofa á vegum IFLA. Skráning og nánari upplýsingar hér.
Að lokum minnum við á fjölda námskeiða og fræðslumola á vegum Landskerfa, sjá öll námskeið hér.