Funda- og ráðstefnuefni

Funda- og ráðstefnuefni 

Hér er að finna upplýsingar um fundi, ráðstefnur og málþing sem Upplýsing hefur átt aðild að. Félagsmenn geta sótt glærur frá flestum viðburðum.

Lifandi bókasafn [2008]
Fræðslu- og skemmtinefnd Upplýsingar stóð fyrir fræðslufundi þar sem Pia Viinikka bókasafnsfræðingur í Norræna húsinu (áður Húsaskóla) hélt erindi um Lifandi bókasafn. Fundurinn var haldinn í Norræna húsinu mánudaginn 21. apríl kl. 16:00 2008.
Lifandi bókasafn starfar eins og venjulegt bókasafn – lesendur koma og fá „lánaða“ bók í takmarkaðan tíma. Það er aðeins einn munur á: bækurnar í lifandi bókasafni eru fólk og bækurnar og lesendurnir eiga persónuleg samskipti. Hér má  finna nánari upplýsingar um verkefnið:
Lifandi bókasafn ? leiðbeiningar fyrir skipuleggjendur?
http://www.norden.org/pub/kultur/barn/is/ANP2005763.pdf
Glærur frá fyrirlestrinum eru nú aðgengilegar á vefnum.

Aðgengi fyrir alla. Fortíð metin ? framtíð rædd [2007]
Málþing um landsaðgang Íslendinga að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum sem haldið var á Grand Hotel, Reykjavík, 15. október 2007 kl. 8:30-16:30. Glærur frá fyrirlestrum eru nú aðgengilegar á vefnum.

Viðburðir í tilefni af 50 ára afmæli bókasafns og upplýsingafræði í HÍ [2006-2007]
Afmælisdagskrá og erindi fræðslufunda aðgengileg í vefsafni

Málþing um höfundarétt á bókasöfnum [2007]
Glærur frá fyrirlestrum 17. apríl 2007:
Þórdís T. Þórarinsdóttir: Ávarp (pdf)
Ólöf Benediktsdóttir: Bókasaöfn og höfundaréttur (pdf)
Elín Helgadóttir: Fjölís. Hlutverk og starfsemi (pdf)
Rán Tryggvadóttir: Breytingar á höfundalögum og áhrif þeirra á bókasöfn (pdf)

 

Cataloguing 2007 – Back to the basics – flying into the furure. Upplýsing átti aðild að alþjóðlegri ráðstefnu um skráningu sem haldin var í Reykjavík í febrúar 2007. Glærur frá fyrirlestrum eru aðgengilegar í vefsafninu í afriti af vef ráðstefnunnar.

Á Leonardo styrk og hælaháum skóm í bókasöfnum Berlínarborgar [2006]
Þann 16. nóvember 2006 var haldinn morgunverðarfundur á vegum Upplýsingar þar sem  kynnt var ferð nokkurra bókasafnsfræðinga til Berlínar, en fenginn var styrkur frá Leonardo áætlun Evrópusambandsins til fararinnar.
Hér má skoða glærur frá fundinum.

NVBFs (NVBF : Nordiske vitenskapelige biblioteksforeningers forbund)[2000/2004]
Erindi frá NVBF ráðstefnu 2004
Erindi frá NVBF ráðstefnu 2002
Erindi frá NVBF ráðstefnu 2000 

NORD I&D: 11th Nordic Conference on Information and Documentation [2001]
Erindi