Hugmyndir fyrir bókasafnsdaginn
Hér verða settar inn hugmyndir að dagskrá og viðburðum sem bókasöfn geta nýtt sér fyrir bókasafnsdaginn.
Sendu þína hugmynd á oskarthr(hja)gmail.com.
Ýmiskonar hugmyndir að viðburðum:
- Blása og hengja upp marglitar blöðrur til að skapa stemningu eins og í afmæli
-
Upplestur fyrir börn/fullorðna
-
Hengja upp gátur/spurningar með textum úr bókum þar sem giska á hvaða bók þetta er
-
Bjóða í kaffi og bakkelsi
-
Ljóðaupplestur
-
Bjóða gestum að taka þátt í að skrifa sögu (samskrif)
-
Hafa kynningu á ákveðnum höfundum/bókaflokki
-
Skipuleggja að hafa fundi svo sem bókaklúbba þennan dag
-
Lifandi tónlist
-
Opin námskeið
-
Bjóða gestum í skoðunarferðir „baksviðs“
-
Bókmenntagöngur/bókmenntaumfjöllun
-
Sérstakar uppákomur/efni á vefsíðu í tilefni dagsins
-
Gefa bókamerki/lestrardagbækur
-
Lestrarátak á safninu (hvað verða lesnar margar síður inni á bókasafninu á bókasafnsdeginum?)
-
Samkeppni um slagorð fyrir bókasöfn
-
Gefins bækur (þeir sem hafa sölubás gætu gefið þær þennan daginn)
-
Spurningakeppni (ekki pubquiz heldur libquiz)
-
Bjóða bæjarráðsmönnum/sveitastjóramönnum í formlega heimsókn
-
Setja einhver met innan safnsins
-
Fá bókaútgefanda til þess að gefa verðlaun í happdrætti/spurningaleik
-
Skemmtun
-
Brandarakeppni
-
Bjóða upp á að skrifa bréf til bókasafnsins sem hengt verður upp
-
Bjóða viðskiptavinum að koma kjósa 100 bestu bækurnar/ uppáhalds íslensku bókina sína / uppáhalds handbókina
-
Gefa bókamerki
-
Sýning á gömlum munum, bókum og fleiru tengdu fyrri árum bókasafnsins
-
Myndlistasýning
-
Bókmenntagetraun
-
Sektarlaus dagur
-
Viðhorfskannanir
-
Fræðibókaþema, leggja áherslu á fræðibækur og stilla út fræðibókum.
-
Starfsmenn mæla með uppáhalds eða að þeirra mati merkilegum fræðibókum
-
Bókapakkar fyrir börn og fullorðna með fræðibókum t.d. ?Fróði fræðimaður“ lánar spennandi bókapakka
-
Vísindalegar staðreyndir og/eða fáránlegu fróðleikur prentað út og hengt upp á söfnunum.
-
Auglýsa frí kynningarskírteini
-
Auglýsa og halda örnámskeið á söfnunum á bókasafnsdaginn til að kynna starfsemi safnanna, eins og leshringi o.fl.
-
Nýta sjónvarpskjáina til að kynna safnið eða bækur. T.d. að láta rúlla myndir af skemmtilegum myndum af öllu sem tengist bókum, bóklestri, bókasöfnum, bókaföndri, bókabílum o.s.frv.