Fólk, tækni og rými
Spennandi fyrirlestrar um fólk, tækni og rými, allt frá áherslu á þjónustu í framlínu, breyttar þarfir notenda í stafrænum heimi yfir í umbreytingu rýmis bókasafna. Lykilfyrirlesarar verða þeir Reinert Andreas Mithassel, deildarstjóri Biblio Toyen í Noregi og Aat Vos, arkitekt sem hefur hannað fjölmörg bókasöfn víðsvegar í Evrópu.
Eigum góða daga saman í Hörpu!
Drög að dagskrá Fólk, tækni og rými í breyttum veruleika bókasafna
Miðvikudagur 24. október kl. 17-19
Í tilefni af 200 ára afmæli Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, býður safnið til afmælisveislu í Þjóðarbókhlöðunni.
Landsfundargestum er sérstaklega boðið að koma og gleðjast í góðra vina hópi og njóta léttra veitinga.
Fimmtudagur 25.október
9.00 Afhending gagna og kaffi
9:30 Setning fundar: Jóhann Heiðar Árnason, formaður Upplýsingar
9:45 Ávarp: Pálína Magnúsdóttir, borgarbókavörður
9:50 Nýja bókasafnið. Hollenski arkitektinn Aat Vos, sem hefur hannað bókasöfn víða um Evrópu, segir frá verkefnum sínum og rýmishugsun „nýja bókasafnsins“
11.00 Kaffihlé
11.30 Nýr Gegnir – verkefnin framundan, Sigrún Hauksdóttir, þróunarstjóri hjá Landskerfi bókasafna
12.00 Matarhlé
13.00 Stafrænar breytingar á Borgarbókasafninu. Ásta Þöll Gylfadóttir, ráðgjafi í stafrænni þróun hjá Advania og fyrrum verkefnastjóri hjá Borgarbókasafninu
13.50 Röð stuttra erinda:
- Samskipti við notendur. Pia Sigurlína Viinikka, verkefnastjóri við Bókasafn og upplýsingaþjónustu Háskólans á Akureyri
- Nordic leadership training program. Guðríður Sigurbjörnsdóttir, safnstjóri Borgarbókasafnsins í Sólheimum og Kringlu
- Lestrarvinir. Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, deildarbókavörður í Borgarbókasafni
- Skjöl skipta máli. Svanhildur Bogadóttir, borgarskjalavörður
- „Sögur“ verkefnið. Ragnheiður L. Bjarnadóttir, sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar
15.00 Hressihlé – létt kaffi og hreyfing
15.30 Læsi er lykillinn. Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur í Seljaskóla
16.00 Dagskrárlok fyrri fundardags
17.30 Móttaka í boði Reykjavíkurborgar í Ráðhúsi Reykjavíkur
Föstudagur 26.október
9.00 Kaffi og létt spjall
9.30 Öðruvísi bókasafn. Reinert Andreas Mithassel, deildarstjóri Biblio Tøyen, unglingabókasafns í úthverfi Osló, sem vakið hefur mikla athygli
10.30 Kaffihlé
10.50 Design Thinking – Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri í Borgarbókasafni : þjónusta í framlínu bókasafna með aðferðafræði Design Thinking
11.30 Röð stuttra erinda:
- Nýju persónuverndarlögin. Áslaug Björgvinsdóttir, lögmaður
- Talað í skýin, um kýr, tækni og mannlegt eðli á bókasafni. Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands
- „Maker space“, tilraunaverkstæði Borgarbókasafnsins. Guðrún Baldvinsdóttir, verkefnastjóri og Esther Ýr Þorvaldsdóttir, kynningarstjóri í Borgarbókasafninu
12:00 Skjáskot – valdefling nýrrar kynslóðar. Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur, ljóðskáld, uppistandari, tónlistarmaður, leikari og lögfræðingur
12.30 Landsfundi slitið. – Gengið yfir í Borgarbókasafnið, Grófinni
12.45 Matarhlé – boðið upp á samlokur á bókasafninu
13.30 Bókmenntarútuferð með heimsókn í Borgarbókasafnið – Gerðubergi og Þjónustumiðstöð bókasafna
15:15 Dagskrárlok við Hörpu
Almennar upplýsingar
Landsfundur Upplýsingar 2018 verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu
Þátttökugjald
Þátttökugjald fyrir Landsfundinn er:
– 27.000 fyrir félagsmenn.
– 32.000 fyrir utanfélagsmenn
Eftir 11.október hækkar gjaldið í:
– 32.000.- fyrir félagsmenn
– 37.000 fyrir utanfélagsmenn