Landsfundur 2016

Landsfundur Upplýsingar á Suðurnesjum 2016

29.-30.september í Hljómahöll, Reykjanesbæ.

 

Landsfundur Upplýsingar verður að þessu sinni haldinn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, dagana 29. og 30. september n. k. Skipulag fundarins er í höndum starfsmanna bókasafnanna í Grindavík, Vogum, Sandgerði, Garði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Reykjanesbæjar. Afhending gagna hefst kl. 9.00 og fundur settur kl. 10.00 á fimmtudeginum. Hátíðarkvöldverður verður kl. 19:00 í Hljómahöllinni. Dagskrá lýkur kl. 14.15 á föstudeginum og farið verður í skoðunarferð kl. 15:30 fyrir þá sem skrá sig í ferðina.

Þátttökugjöld, skráning og aðrar upplýsingar verða kynntar þegar nær dregur.

 


Gistimöguleikar 

Upplýsingar um gistimöguleika í Reykjanesbæ (hótel, gistiheimili, íbúðir) verða sendar út á Skruddu og sérstök frétt útbúin á vef Upplýsingar. Sérstök Fésbókarsíða fyrir Landsfund 2016 er komin í loftið, https://www.facebook.com/Landsfundur2014 þar sem ýmsum fróðleik og öðru skemmtilegu verður komið á framfæri. Við hvetjum ykkur til að líka við síðuna, deila henni og fylgjast með okkur þar. Hægt er senda undirbúningsnefndinni fyrirspurnir í gegnum síðuna eða á netfangið [email protected].

 

Hér nokkrir gistimöguleikar í Reykjanesbæ:

 

**************************
Park Inn by Radison
Einsmanns herbergi 14.900 kr.
Tveggjamanna herbergi 16.900 kr.
Þriggjamanna herbergi 20.400 kr.
Morgunverður innifalinn.
Síminn hjá Park Inn er 421-5222 og gefa þarf upp nafn hópsins, 1609baekur, þegar pantað er.
**************************
Raven’s guesthouse
Hulda hjá Raven’s á herbergi fyrir 16 manns í tveggja og fjögurra manna herbergjum. 
Verðið er 4.200 á mann.
Morgunverður innifalinn.
Hægt er að ná á Huldu í síma 661-6999 og gefa þarf upp að þetta sé bókun vegna landsfundar Upplýsingar.
**************************
Hótel Grásteinn
Hér er tveggjamanna herbergi á 14.500 kr. og það eru 17 herbergi, ýmist 2 eða 4 manna. 
Morgunverður innifalinn.
Síminn á Hótel Grásteini er 421-5200 og taka skal fram að þetta sé bókun vegna landsfundar.
**************************
Mörg önnur hótel og gistiheimili eru á Suðurnesjum og best er að panta sem fyrst til að fá nú örugglega gistingu!

 

Um að gera að skoða stóru vefina eins og þessa og leita bara. Sumir aðilar auglýsa á mörgum vefjum en aðrir bara á einum.

 

http://www.booking.com/

https://www.airbnb.is/