3.nóvember voru afhendar viðurkenningar fyrir nýsköpun í opinberum rekstri. Það er ekki úr vegi að óska Þóru Ingólfsdóttur og hennar fólki á Blindrabókasafni Íslands til hamingju með viðurkenninguna.
Í umsögn dómnefndar um verkefnið segir:
?Verkefnið felur í sér mikla nýbreytni í starfsemi stofnunarinnar og nýja nálgun sem þýðir umbyltingu í þjónustu við skjólstæðinga stofnunarinnar. Með verkefninu er innleidd ný tækni fyrir þjónustu stofnunarinnar og hún þróuð í samvinnu við utanaðkomandi aðila. Úrlausnin hefur mikil áhrif á störf í stofnuninni og hefur vinnusparnað í för með sér. Verkefnið felur í sér að fleiri hópar geta nýtt sér þjónustuna og notkun þessarar tækni má yfirfæra á aðra og ólíka þætti opinberrar starfsemi.?
Hér má sjá nýjan vef sem opnaður var í gær: http://www.nyskopunarvefur.is/
Og hér er nánar um verkefnið: http://www.nyskopunarvefur.is/