Ritstjórnarstefna
Ritnefnd Bókasafnsins leggur áherslu á að birta bæði vandað og fjölbreytt efni í tímaritið meðal annars:
- Fræðilegar greinar
- Almennar og eða fræðandi greinar
- Ráðstefnur – málþing
- Viðtöl – umræður – skoðanaskipti
- Stuttar bókmenntatengdar greinar
- Umsagnir um rit sem á einhvern hátt snerta fagið
- Minningargreinar
- Ljóð, hækur, örsögur eða smásögur
- Smælki eða myndir til að fylla upp í og krydda
Mikilvægt er að í tímaritinu sé fjallað um öll svið sem falla undir bókasafns- og upplýsingafræði, svo sem skólabókasöfn, almenningsbókasöfn, rannsóknarbókasöfn og bókasöfn stofnana og fyrirtækja, skjalastjórn, skjalavörslu eða upplýsingamál almennt. Við munum að fjalla um þær tæknilegu og samfélagslegu breytingar sem geta haft áhrif á fagið og þá starfsemi sem það tengist. Horfum bæði til fortíðar og framtíðar og tökum púlsinn á samtímanum.
Ábendingar um spennandi efni og höfunda eru vel þegnar sem og aðrar ábendingar er varða útgáfuna.