Samfélags- og vefmiðlar
Fylgstu með og taktu þáttUpplýsing notast við ýmiskonar samfélagsmiðla til þess að koma viðburðum, uppákomum og málefnum á framfæri. Vefsíða Upplýsingar, facebook og Youtube eru megin uppistaðan í samfélagsmiðlun upplýsingar en ýmsir aðrir miðlar eru nýttir í tengslum við sérstaka viðburði og uppákomur.
Facebook síða Upplýsingar er upplýsingasíða um starfsemi félagsins og málefni sem tengjast félaginu. Þar eru helst settar inn tilkynningar og skráningar vegna viðburða, myndir af starfi félagsins og einnig er áhugaverðum fréttum deilt á síðuna. Fyrirspurnir hafa einnig verið að berast gegnum Facebook til félagsins.
Youtube
Á Youtube rás Upplýsingar má finna safn myndbanda sem tekin hafa verið upp á á viðburðum á vegum Upplýsingar. Þar má helst nefna upptöku af morgunkornum og ráðstefnum. Frá 2016 hefur verið stefnan að að streyma öllum Morgunkornum beint í gegnum Youtube ef netsamaband og tæknibúnaður leyfir.
Instagram (upplysing)
Instagram reikningur Upplýsingar birtir reglulega myndir úr starfi félagsins.
Instagram (bokasafnsdagurinn)
Instagram reikningur bókasafnsdagsins er notaður í aðdraganda Bókasafnsdagsins.