Verklagsreglur um útgáfu Bókasafnsins
Hlutverk ritnefndar er að annast útgáfu og ritstjórn Bókasafnsins og vera ráðgefandi varðandi útgáfu þess á vefnum. Nefndin hefur sjálfstæði í störfum sínum en er ætlað að upplýsa stjórn Upplýsingar reglulega um stöðu mála og framvindu. Þá er ritnefnd gert að senda Upplýsingu ársreikning nefndarinnar tímanlega svo hægt sé að leggja hann fyrir aðalfund Upplýsingar.
Bókasafnið – verklagsreglur um útgáfu
- Útgefandi: Upplýsing – Félag bókasafns- og upplýsingafræða.
- Hlutverk og markmið: Bókasafnið er fagtímarit bókasafns- og upplýsingafræðinga, bókavarða, skjalastjóra, skjalavarða og annarra sem starfa við fagið.
- Útgáfutíðni: Bókasafnið er gefið út árlega að vori.
- Upplag: Miðast við félagafjölda í Upplýsingu auk þeirra eintaka sem send eru til heiðursfélaga, höfunda, auglýsenda og vegna ritaskipta og kynningar.
- Útbreiðsla: Allir skuldlausir félagar í Upplýsingu fá blaðið sent í áskrift skv. lista frá stjórn Upplýsingar. Ritnefnd sendir blaðið til félagsmanna og annarra sem eiga að fá blaðið.
- Vefsetur blaðsins er undirsíða á vegum Upplýsingar. Að fjórum mánuðum liðnum verður blaðið aðgengilegt í heild sinni. Afgangsblöð skulu geymd á skrifstofu Upplýsingar.
- Efnistök: Hvaðeina sem hugsanlega getur snert fag- og starfssvið félagsmanna.
- Fjármögnun: Ritnefnd fjármagnar blaðið og umsjón þess með auglýsingum. Útgáfan skal standa undir sér.
- Ritstjórn: Formaður ritnefndar er tilnefndur af stjórn Upplýsingar, hann er jafnframt ritstjóri Bókasafnsins. Uppstillinganefnd gerir tillögur um samstarfsaðila hans með fjölbreytileika og safnategundir í huga en í nefndinni skulu vera 5-7 aðilar. Nefndin skiptir með sér verkum.