-
Bókasöfn og hringrásarhagkerfi Næsta morgunkorn Upplýsingar verður í Borgarbókasafninu Gerðubergi 24. október 2024 kl. 9:00-10:00. Borgarbókasafnið í Gerðubergi setti nýlega á fót Fribúð þar sem fólk getur komið og losað sig við hluti og aðrir eignast þá. En hvernig tengist bókasafnið þessu hringrásarþema, er ekki allt að láni á bókasafninu? Ilmur Dögg Gísladóttir ætlar að leiða okkur í sannleikann um þetta. Að fyrirlestri loknum geta gestir skoðað Fríbúðina og kannski losað sig við eitthvað óþarfa dót. Um Fríbúðina má fræðast hér: https://borgarbokasafn.is/fribud-hring-eftir-hring […]