Loading Events

Aðalfundur og Vorgleði Upplýsingar – Fræðslufundur skrásetjara – Vorráðstefna Notendahóps Gegnis

29 maí kl 9:30 f.h. - 6:00 e.h.
  • Föstudagurinn 29. maí 2026 verður helgaður málefnum bókasafna.

Við verjum deginum í Lóni – fyrirlestrasal í Þjóðarbókhlöðu – við fræðslu, störf og leik.

  • Kl. 9:30–12 verður Fræðslufundur skrásetjara haldinn á vegum Landskerfis bókasafna.

Skráning á fundinn fer fram hér.

  • Kl. 13–13.50 fer fram Aðalfundur Upplýsingar.
  • Kl. 14–15.50 verður Vorráðstefna notendahóps Gegnis.
  • Kl. 16–18 fer fram Vorgleði Upplýsingar.

Skráning á viðburðina sem fara fram eftir hádegi er hér.

Athugið að ekki verður boðið upp á veitingar í hádeginu.

Landskerfi bókasafna sér um upptöku á fræðslufundinum en hann verður ekki í streymi.

Aðalfundurinn og Vorráðstefnan verða tekin upp en verða ekki í streymi.

Hlökkum til að sjá ykkur öll!

 

Dagskrá Fræðslufundar skrásetjara kl. 9.30–12

  1. Fundur settur – Þorsteinn G. Jónsson (Doddi), formaður skráningarráðs
  2. Gildi góðrar skráningar í gagnavinnslu og gæðaeftirliti – Sigrún Hauksdóttir
  3. Gervigreind í skráningu í Gegni – Kristín Lilja Björnsdóttir og María Bjarkadóttir
  4. Hlé
  5. Nafnmyndavinna á Landsbókasafni – Sigurgeir Finnsson
  6. Örfréttir og áminningar – Kristín Lilja Björnsdóttir
  7. Umræður og önnur mál

 

Dagskrá Aðalfundar Upplýsingar kl. 13–13.50

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins – sjá 8. gr. https://upplysing.is/log/

a) Skýrsla stjórnar.
b) Skýrslur hópa og nefnda.
c) Reikningar félagsins.
d) Ákvörðun launa og þóknunar til stjórnarmanna.
e) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.
f) Árgjald.
g) Lagabreytingar.
h) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.
i) Kosning skoðunarmanna reikninga.
j) Önnur mál.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar.
Á fundinum verða Heiðursverðlaun Upplýsingar afhent.

 

Dagskrá Vorráðstefnu Notendahóps Gegnis kl. 14–15.30

14–14.30

  • Klúbbar og konfekt. Unnur María Sólmundardóttir bókasafnskennari í Breiðholtsskóla.

14.30–15

  • Ný gagnavinnsla
    – öflugt vinnuumhverfi í Gegni. Sigrún Hauksdóttir hjá Landskerfi bókasafna.

  • Ný tækifæri og upplifun í Leitum. Bára Stefánsdóttir og Skúli Þór Bjarnason hjá Landskerfi bókasafna.

15–15.15

  • Kaffihlé

15.15–15.40

  • Þar sem samfélagið hittist: ferðalag Bókasafns Garðabæjar, ný hlutverk og ný tækni. Margrét Berndsen Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bóksafns Garðabæjar.

15.40–16

  • Flutningar bókasafns STÁM 2023. Guðný Ragnarsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur á Stofnun Árna Magnússonar.

Þjóðarbókhlaðan

Arngrímsgata 3
Reykjavík, 107 Iceland