Search
Loading Events

Morgunkorn á Bókasafnsdaginn 6. september 2024

Þessi viðburður er liðinn

6 september kl 9:00 f.h. - 10:00 f.h.

Marteinn Knaran Ómarsson fjallar um glæpasögur

Næsta morgunkorn Upplýsingar verður í Borgarbókasafninu Kringlunni á Bókasafnsdaginn þann 6. september 2024 kl. 9:00-10:00.

Þórný Hlynsdóttir formaður Upplýsingar opnar fundinn og Marteinn Knaran Ómarsson heldur fyrirlestur sem ber heitið „Af túristadrápum og kviðristumorðum“ og fjallar um raðmorðingja og glæpasögur í menningunni. 

Húsið opnar kl. 8:45 með kaffiveitingum.

Að venju verður Morgunkornið sent út í streymi en þau sem vilja mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig hér að neðan. Skráningu líkur 4. september kl. 16:00.