Upplýsing boðar til aðalfundar félagsins föstudaginn 4. maí nk. Fundurinn hefst kl 17:00 og er haldinn í Bókasafni Mosfellsbæjar

Stjórn félagsins óskar eftir tilnefningum í stöðu formanns félagsins. Tilnefningar má senda á [email protected].

Farið verður yfir lagabreytingartillögur sem lagabreytinganefnd félagsins hefur unnið að síðan nefndin var kjörin á aðalfundi félagsins í maí 2017. Lagabreytingatillögurnar má finna hér. Endilega kynnið ykkur þær fyrir fundinn. 

Við biðjum ykkur að skrá ykkur á aðalfund með því að smella hér. 

Skráningu lýkur kl 12. á hádegi miðvikudaginn 2. maí.

Hér að neðan má sjá tilvísun í 8. gr. laga félagsins um aðalfund og mun dagskráin vera eins og hún kemur fyrir þar. 

  1. gr. –Aðalfundur
    Aðalfund skal halda í maímánuði ár hvert. Til hans skal boðað skrif­lega með minnst tíu daga fyrirvara. Fundarboðinu fylgi dag­skrá fundarins, ásamt tillögum um laga­breyt­ingar, ef ein­hverjar eru.

    Dagskrá aðalfundar:
    a) Skýrsla stjórnar.
    b) Skýrslur hópa og nefnda.
    c) Reikningar félagsins.

  2. d) Ákvörðun launa og þóknunar til stjórnarmanna.
  3. e) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.
  4. f) Árgjald.
    g) Lagabreytingar.
    h) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.
    i) Kosning skoðunarmanna reikninga.
    j) Kosning í fastanefndir til tveggja ára í senn.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis skuldlausir félagar.