Search

Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, í samstarfi við bókasöfn á Íslandi heldur Bókasafnsdag, fimmtudaginn 14. apríl.


Tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna fyrir þjóðfélagið. Bókasöfn
gegna mikilvægu hlutverki sem miðstöð fræðslu og þekkingar, fyrir framboð á tón- og
myndlistarefni, yndislestri og afþreyingu, fyrir aðstoð við upplýsingaöflun og gagnaleitir.
Bókasöfn eru auk þess samkomuhús, menningarmiðstöðvar og góður staður til að vera á.
Bókasöfn eru heilsulind hugans.


Bókasöfnin munu taka á móti viðskiptavinum sínum eins og vanalega þennan dag. Mörg
þeirra verða með dagskrá eða tilbreytingu í starfsemi sinni eins og sjá má á eftirfarandi
dæmum:



Ef þú vilt gera deginum skil á einhvern hátt ? þá eru talsmenn bókasafna um land allt tilbúnir
til að koma í viðtöl eða ræða við þig um mikilvægi bókasafna.


Hafðu samband við:
Málfríði Finnbogadóttur malfridur@seltjarnarnes.is sími: 595 9170 eða Hrafnhildi
Hreinsdóttur, formann Upplýsingar hrafnhildur@velvakandi.is s. 894 8101 og þær tengja þig
við rétta fólkið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *