Hvatningarverðlaun 2025
Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna Upplýsingar sem afhent verða í fjórða sinn á
Bókasafnsdaginn þann 8. september 2025. Verðlaunin verða veitt starfsmönnum fyrir einstök verkefni
er stuðla að aukinni nýbreytni og þróunarstarfi á bókasöfnum. Allir geta sent inn tilnefningar;
starfsfólk sem og notendur bókasafna.
Markmiðið með verðlaununum er að:
- Veita starfsfólki bókasafna jákvæða hvatningu í starfi.
- Vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fram fer á vegum bókasafna.
- Stuðla að aukinni nýbreytni og þróunarstarfi.
Opið er fyrir tilnefningar til og með 8. ágúst 2025.
Með bestu kveðju,
Undirbúningsnefnd Bókasafnsdagsins