Jólagleði Upplýsingar 2025 verður haldin með pompi og prakt föstudaginn 28. nóvember kl. 18-20 í Eddu (húsi íslenskunnar) við Arngrímsgötu 5 í Reykjavík.
Boðið verður upp á laufléttar og ljúffengar veitingar og skemmtiatriði sem hæfir tilefninu.
Kærkomið tækifæri til að leyfa jólaskapinu að njóta sín!
Félagar í Upplýsingu greiða ekkert fyrir jólagleðina.
Þeir sem eru utan félags greiða 6.000 kr. fyrir veitingar og skemmtun á jólagleði. Eftir skráningu þarf utanfélagsfólk að millifæra inn á reikning félagsins:
Rnr.: 0111-26-505712
Kt.: 571299-3059
og senda kvittun í tölvupósti á [email protected].
Allir, bæði félagar og utan félags þurfa að skrá sig.
Skráningu lýkur mánudaginn 24. nóvember kl. 16.


