Search

Dögg Hringsdóttir valin heiðursfélagi

Dögg Hringsdóttir (til hægri) og Þórný Hlynsdóttir, formaður Upplýsingar.

Á nýafstöðnum aðalfundi Upplýsingar tilkynnti formaður val stjórnar á nýjum heiðursfélaga. 

Fyrir valinu að þessu sinni varð Dögg Hringsdóttir.

Fékk hún afhentan fallegan verðlaunagrip og veglegan blómvönd. 

Dögg ávarpaði síðan fundinn og fór yfir starfsferilinn í stuttu máli og þær breytingar sem orðið hafa á tækniumhverfi bókasafna á hennar tíð.

Tölu hennar má sjá og heyra í lok upptöku frá aðalfundi hér.

Þórný Hlynsdóttir formaður sagði m.a. eftirfarandi við þetta tækifæri:

Óhætt er að segja að Dögg hafi ekki borist á í bókasafnaheiminum en sannarlega hefur hún unnið ötullega bak við tjöldin.

Dögg hefur látið af störfum,en á langa og farsæla starfsævi að baki.

Hún útskrifaðist af eðlisfræðibraut Menntaskólans í Reykjavík árið 1979 með fyrstu einkunn.

Þá lauk Dögg BA-prófi í bókasafnsfræði við Háskóla Íslands árið 1983, með fyrstu einkunn.

Þá flutti hún til Oslóar og var í framhaldsnámi í upplýsingafræði við Háskólann í Osló frá 1994 til 1997 en lokaverkefni hennar fjallaði um prófun og samanburð á leitum í gagnagrunnum þátttakenda ONE-áætlunarinnar via Telnet og með Z39.50-biðlarahugbúnaði.

Ári seinna lauk Dögg grunnnámskeiði kerfisbókavarðar og sérhæfði sig jafnt og þétt í kerfisgagnavinnu og kerfisnotkun bókasafna. 

Starfsferilinn byrjaði hún á Deichmanske bibliotek í Osló, frá 1998 til 1999 á skipulags- og þróunarsviði.

Eftir að heim kom vann Dögg á Borgarbókasafni Reykjavíkur, frá 2000 til 2002 sem verkefnastjóri á þróunar- og bókfræðisviði og vann við Dobis/Libis-kerfið, sem einhverjir þekkja sem Feng.

Þá hóf hún störf hjá Landskerfi bókasafna árið 2001, sem kerfisstjóri Gegnis, fyrst með Aleph-bókasafnskerfið, sem var frá ExLibris eins og kerfið sem við notum í dag, ALMA.

Fyrir hönd starfsfólks bókasafna á Íslandi óskar Upplýsing Dögg til hamingju með nafnbótina og þakkar fyrir framlag hennar til framgangs bókasafna.