Search

Heimsmarkmiðin lifna við á bókasöfnum landsins í Viku 17

Hversu oft hugsar þú um heimsmarkmiðin í þínu daglega lífi? Getur verið að þú sért að vinna að þeim án þess að vita af því?

Dagana 20.–26. apríl 2026 fer fram Vika 17, vika heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á bókasöfnum.

Bókasöfn um allt land bjóða upp á spennandi dagskrá sem sýnir að heimsmarkmiðin eru ekki bara flókin hugtök á blaði heldur hluti af daglegu lífi okkar.

Þema ársins 2026 beinist að heimsmarkmiði númer 2: Ekkert hungur. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem tengjast matvælum, minni matarsóun og hvernig við hugsum um neyslu okkar. Diskósúpa og fræðsla um matarsóun og afganganýtingu í samstarfi við Slow Food á Íslandi eru meðal viðburða. Þá verða víða skiptimarkaðir, viðgerðakaffi, plokkbingó, hjólayfirferð, bókaútstillingar, ratleikir og fræsöfn, svo eitthvað sé nefnt.

Öll fjölskyldan ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Viku 17.

Þetta er í fjórða sinn sem vikan er haldin hér á landi en verkefnið á uppruna sinn að rekja til Danmerkur. Í dag taka hátt í 200 bókasöfn frá 12 löndum þátt í því að sýna hvernig við getum öll lagt okkar af mörkum til sjálfbærrar framtíðar.

Við hvetjum öll til þess að kíkja við á sínu bókasafni í Viku 17 og taka þátt í að gera heiminn aðeins betri!

 

Viðburðir verða á eftirtöldum söfnum á höfuðborgarsvæðinu

Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal: Plokkbingó – kynning á minimalískum leik, að losa sig við 465+ hluti á 30 dögum.

Bókasafn Garðabæjar: Barnabókaskiptimarkaður – Plokkbingó – Vorhreingerning með KonMari-aðferðinni – Bókmenntagangan saga og raddir kvenna með Arndísi Þórarinsdóttur – Diskósúpuveisla – Hjólastuð með Dr. Bæk.

Bókasafn Kópavogs: Lausnin á matarsóun með Slow Food á Íslandi – erindi um gámadýfingar – opnun frísskáps – erindi um sjálfbærni í textíl – textílskiptimarkaður – enduropnun Hringrásarsafns – smiðja fyrir börn.

Bókasafn Seltjarnarness: Ratleikur tengdur heimsmarkmiðunum.

 

Á Reykjanesi og Suðurlandi

Bókasafn Reykjanesbæjar – Aðalsafn: Lausnin á matarsóun með Slow Food á Íslandi – Plokkum saman – Áhrifamáttur íslenskra lækningajurta – Plöntuskiptimarkaður – Fræsafn – Hvaðan kemur maturinn?

Bókasafn Reykjanesbæjar – Stapasafn: Fataskiptimarkaður – Plokkum saman

Bókasafn Árborgar: Plöntuskipti  Fræskápur

Héraðsbókasafn Rangæinga: Plokkbingó – Plöntuskiptimarkaður – Fræsafn – Búum til sáningarpotta úr dagblöðum

Menningarmiðstöð Hornafjarðar: Plokkbingó – Föndur úr gömlum bókum – Fræsafn.

 

Á Norður- og Austurlandi

Amtsbókasafnið á Akureyri: Skiptimarkaður með veisluskraut – sáningarverkstæði – Minni sóun, meiri verðmæti, chatgpt gegn matarsóun – Sögustund Hvaðan kemur maturinn? – ratleikur tengdur heimsmarkmiðunum.

Bókasasfn Múlaþings: Plokkbingó á öllum starfsstöðvum: Egilsstöðum, Seyðisfirði og Djúpavogi.

 

Á Vesturlandi og Vestfjörðum

Amtsbókasafnið í Stykkishólmi: Viðgerðarverkstæði – Plokkbingó

Bókasafn Bolungarvíkur: Viðgerðarsamkoma

 

Listinn er ekki tæmandi og einhverjir viðburðir fara fram dagana 27.30. apríl.

Nánari upplýsingar um heimsmarkmiðin má finna á heimsmarkmidin.is.