Föstudagurinn 29. maí verður helgaður málefnum bókasafna
Við verjum deginum í Lóni, fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, við fræðslu, leik og störf.
- Kl. 9.30–12 verður Fræðslufundur skrásetjara haldinn á vegum Landskerfis bókasafna.
Skráning á fundinn fer fram hér.
- Kl. 13–13.50 fer fram Aðalfundur Upplýsingar.
- Kl. 14–16 verður Vorráðstefna Notendahóps Gegnis.
- Kl. 16–18 fer fram Vorgleði Upplýsingar.
Skráningarblað fyrir viðburðina sem fara fram eftir hádegi er hér.
Athugið að ekki verður boðið upp á veitingar í hádeginu.
Landskerfi bókasafna sér um upptöku á fræðslufundinum en hann verður ekki í streymi.
Aðalfundurinn og Vorráðstefnan verða tekin upp en verða ekki í streymi.
Hlökkum til að sjá ykkur öll!
Dagskrá Fræðslufundar skrásetjara kl. 9.30–12
-
Fundur settur – Þorsteinn G. Jónsson (Doddi), formaður skráningarráðs
-
Gildi góðrar skráningar í gagnavinnslu og gæðaeftirliti – Sigrún Hauksdóttir
-
Gervigreind í skráningu í Gegni – Kristín Lilja Björnsdóttir og María Bjarkadóttir
-
Hlé
-
Nafnmyndavinna á Landsbókasafni – Sigurgeir Finnsson
-
Örfréttir og áminningar – Kristín Lilja Björnsdóttir
-
Umræður og önnur mál
Dagskrá Aðalfundar Upplýsingar kl. 13–13.50
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins – sjá 8. gr. https://upplysing.is/log/
a) Skýrsla stjórnar.
b) Skýrslur hópa og nefnda.
c) Reikningar félagsins.
d) Ákvörðun launa og þóknunar til stjórnarmanna.
e) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.
f) Árgjald.
g) Lagabreytingar.
h) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.
i) Kosning skoðunarmanna reikninga.
j) Kosning í fastanefndir til tveggja ára í senn.
k) Önnur mál.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar.
Á fundinum verða Heiðursverðlaun Upplýsingar afhent.
Dagskrá Vorráðstefnu Notendahóps Gegnis kl. 14–16
14–14.30
-
Klúbbar og konfekt. Unnur María Sólmundardóttir bókasafnskennari í Breiðholtsskóla.
14.30–15
-
Ný gagnavinnsla
– öflugt vinnuumhverfi í Gegni. Sigrún Hauksdóttir hjá Landskerfi bókasafna.
-
Ný tækifæri og upplifun í Leitum. Bára Stefánsdóttir og Skúli Þór Bjarnason hjá Landskerfi bókasafna.
15–15.15
-
Kaffihlé
15.15–15.40
-
Þar sem samfélagið hittist: ferðalag Bókasafns Garðabæjar, ný hlutverk og ný tækni. Margrét Berndsen Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bóksafns Garðabæjar.
15.40–16.00
-
Flutningar bókasafns STÁM 2023. Guðný Ragnarsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur á Stofnun Árna Magnússonar.
