Málefni bókasafna voru í brennidepli í Þjóðarbókhlöðunni föstudaginn 29. maí sl. Skrásetjarar funduðu, Vorráðstefna Notendahóps Gegnis fór fram og Upplýsing hélt aðalfund og vorgleði.
Aðalfundinum stýrði Telma Rós Sigfúsdóttir og Sigurlaug Jóna Hannesdóttir ritaði fundinn. Þórný Hlynsdóttir formaður fór yfir skýrslu stjórnar sem og skýrslur hópa og nefnda.
Laufey H. Svavarsdóttir gjaldkeri kynnti reikninga síðasta árs og bar upp fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta árs. Fundargestir mæltu með hækkun árgjalds úr 7.000 í 8.000 kr. og var það samþykkt.
Á fundinum óskuðu formaður Þórný Hlynsdóttir, gjaldkeri Laufey H. Svavarsdóttir og varaformaður/ritari Sigurlaug Jóna Hannesdóttir eftir lausn frá stjórnarsetu.
Þrjú framboð til stjórnar höfðu borist fyrir fundinn og voru Sólveig Lind Ásgeirsdóttir, Kolbrún Erla Pétursdóttir og Andrea Ævarsdóttir samþykktar sem nýir stjórnarmenn.
Eitt framboð til formennsku barst og var Hrönn Soffíu- Björgvinsdóttir samþykkt sem nýr formaður Upplýsingar með dynjandi lófaklappi.
Áfram sitja í stjórn Þrúður Sigurðardóttir ritari og Arnar Óðinn Arnþórsson meðstjórnandi og vefstjóri.
Varamenn í stjórn verða Þórný Hlynsdóttir og Sigurlaug Jóna Hannesdóttir.
Skoðunarmenn reikninga verða áfram Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir og Margrét Ásgeirsdóttir.
Upptöku frá fundinum má finna hér.

