Aðalfundur Upplýsingar fer fram miðvikudaginn 25. maí 2022 kl. 15:00
Staðsetning: Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122-124

Dagskrá aðalfundar:
a) Skýrsla stjórnar.
b) Skýrslur hópa og nefnda.
c) Reikningar félagsins.
d) Ákvörðun launa og þóknunar til stjórnarmanna.
e) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.
f) Árgjald.
g) Lagabreytingar.
h) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.
I) Kosning skoðunarmanna reikninga.
j) Kosning í fastanefndir til tveggja ára í senn.
k) Önnur mál.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Streymt verður frá aðalfundinum á Teams.

Eftir aðalfundinn blásum við til léttrar vorgleði. Boðið verður upp á veitingar (um kl. 15:30) og um kl. 16:00 fáum við kynnisferð um hið nýja bókasafn í Úlfarsárdal. Þau sem eru tímabundin geta mætt beint í vorgleðina, en stjórnin vonast þó eftir því að sjá sem flesta á aðalfundinum.

Til að hægt sé að áætla magn veitinga eru gestir vinsamlega beðnir um að skrá mætingu hér fyrir neðan.