Upplýsing boðar til aðalfundar félagsins föstudaginn 17. maí n.k. Fundurinn verður í Borgarbókasafni við Tryggvagötu og hefst kl. 16:15. Að fundinum loknum er boðið til bókasafnsheimsóknar þar sem léttar veitingar verða í boði. Við hvetjum því alla félaga Upplýsingar til að mæta. Hér að neðan má sjá tilvísun í 8. gr. um aðalfund félagsins og mun dagskráin verða hin sama. 8. gr. ? Aðalfundur Aðalfund skal halda í maímánuði ár hvert. Til hans skal boðað skrif­lega með minnst tíu daga fyrirvara. Fundarboðinu fylgi dag­skrá fundarins, ásamt tillögum um laga­breyt­ingar, ef ein­hverjar eru.


Dagskrá aðalfundar:


a) Skýrsla stjórnar.
b) Skýrslur hópa og nefnda.
c) Reikningar félagsins.
d) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.
e) Árgjald.
f) Lagabreytingar.
g) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.
h) Kosning skoðunarmanna reikninga.
i) Kosning í fastanefndir til tveggja ára í senn.
j) Önnur mál.


Aðalfundur telst lögmætur og ályktunar­hæfur sé löglega til hans boðað. Stjórn félags­ins er heimilt að boða til auka­aðal­fundar ef þörf krefur. Skal hann boðaður á sama hátt og aðal­fundur. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis skuldlausir félagar.


Vinsamlegast skráið ykkur hér eða á vef Upplýsingar til að boða komu ykkar á fund  svo við getum áætlað fjölda fundargesta vegna veitinga:


https://docs.google.com/spreadsheet/viewform?fromEmail=true&formkey=dE0wNWd4cG1KZ25fTmx3MXlJV1pocnc6MA


F. h. Upplýsingar

Með bestu kveðju,
Margrét Sigurgeirsdóttir formaður
Upplýsingafræðingur