Aðalfundur Upplýsingar verður haldinn 28. maí í hátíðarsal Tækniskólans á Háteigsvegi. Dagurinn verður helgaður málefnum bókasafna.
Skrásetjarar funda fyrir hádegi, aðalfundur Upplýsingar og vorráðstefna notendahóps Gegnis eftir hádegið og síðdegis verður vorgleði Upplýsingar.
Þau sem ekki komast á staðinn geta fylgst með í streymi eftir hádegi með því að smella á hlekkin hér fyrir neðan. Landskerfi bókasafna sér um streymi fyrir hádegi.