Bókasafnsdagurinn er dagur þeirra sem starfa á bókasöfnum.
Markmið bókasafnsdagsins er tvíþætt:
- Að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu.
- Að vera dagur starfsmanna safnanna.
Við hvetjum öll bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar til þess að taka þátt með einhverjum hætti en um fram allt að njóta dagsins og gera sér dagamun. Neðst á síðunni má sjá hugmyndir að uppákomum.
Síðustu ár hefur bókasafnsdeginum verið fagnað á Degi læsis, þann 8. september.
Í ár verður hann haldinn hátíðlegur mánudaginn 28. september, sem er alþjóðlegur dagur UNESCO um upplýsingaaðgengi.
Mikilvægi lesturs og læsis er óumdeilanlegt. Bókasöfnin eru einn af hornsteinum lestrarmenningar Íslands og þess vegna leggjum við áherslu á læsi í slagorði bókasafnsdagsins: Lestur er bestur.
Þema dagsins í ár er:
Lestur er bestur – á öllum aldri
Að venju verður haldið sérstakt Morgunkorn á Bókasafnsdaginn þar sem félagsmenn Upplýsingar og starfsmenn bókasafna koma saman til þess að halda upp á daginn, þiggja veitingar og hlusta á erindi.
Húsið opnar kl. 09:00 en dagskráin hefst kl 09:15.
Staður: Bókasafn Hafnarfjarðar – Friðrikssalur
09:15 – Formaður Upplýsingar kynnir
09:20 – Hulda Tölgyes, sálfræðingur, fjallar um leshringi sem samveru og hluta af sjálfsvinnu.
09:40 – Arndís Þórarinsdóttir, rithöfundur, fjallar um lestur sem fjölskyldusamveru og deilir lestrarhvetjandi ráðum.
09:55 – Unnur Helga Möller, verkefnastjóri viðburða á Bókasafni Hafnarfjarðar, segir frá því sem er framundan á Bókasafni Hafnarfjarðar.
Að lokinni dagskrá gefst gestum kostur á að fá leiðsögn um hið nýja Bókasafn Hafnarfjarðar með Sigrúnu Guðnadóttur, forstöðumanni.
Skáning á Morgunkornið er hér, en því verður einnig streymt á YouTube-rás Upplýsingar.

