Fyrsta morgunkorn ársins verður fimmtudaginn 14. janúar. Framvegis verða morgunkornin annan fimmtudag í mánuði og er það gert til að koma til móts við Félag um Skjalastjórn sem er með fræðslufundi fyrsta fimmtudag í mánuði.
Að þessu sinni ætlum við að taka fyrir símenntun. Ingrid Kuhlman ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun fjallar um hvar ábyrgðin á símenntun liggur og Kristín Geirsdóttir upplýsingafræðingur hjá Alþingi ætlar að segja frá því hvernig símenntun er háttað á sínum vinnustað.
Að venju verður morgunkornið í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu klukkan 8:30 og það kostar 1000 kr. Morgunverður í boði og skráning á vef upplýsingar. Skráning hér.
Dagskrá:
Ingrid Kuhlman ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. Hver ber ábyrgð á símenntun? Glærur hér
Kristín Geirsdóttir upplýsingafræðingur hjá Alþingi. Símenntun á skrifstofu Alþingins. Gærur hér