Miðvikudaginn 14. september verður fyrsta morgunkorn vetrarins, þetta er svolítið frávik frá því sem verður en ætlunin er að hafa 2 fimmtudag mánaðarins eyrnamerktann morgunkornum.  Að venju verður morgunkornið í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu (á fyrstu hæð).  Morgunkornið hefst með morgunkaffi klukkan 8:30 en fyrirlestrarnir hefjast klukkan 8:45.  Það kostar 1000 kr. fyrir félaga í Upplýsingu en 1500kr. fyrir aðra.  Opið er fyrir skráningu á vef Upplýsingar  eða á þessari slóð https://upplysing.is/Default.asp?Page=437


Dagskrá morgunkornsins:


8:30-8:45 kaffi og morgunsnarl
8:45-9:05 Kristín Viðarsdóttir og Auður Rán Þorgeirsdóttir (verkefnastjórar) kynna verkefnið bókmenntaborg UNESCO 2011
9:10-9:25 Siggerður Ólöf Sigurðardóttir formaður Félags fagfólks á skólasöfnum fjallar um aðkomu skólasafna grunnskólanna að nafnbótinni bókmenntaborg UNESCO 2011
9:25-9:45 Umræður


Ég hvet alla sem geta komist til að drífa sig á morgunkorn Upplýsingar


Með kveðju,
Hrafnhildur Hreinsdóttir
[email protected]
GSM: +354 894 8101