Á morgun höldum við Morgunkorn Upplýsingar á Borgarbókasafninu í Tryggvagötu kl. 8:30-9:45 og verður því streymt beint á YouTube rás Upplýsingar líkt og síðast. Þeir sem ekki hafa tök á að fylgjast með þá geta nálgast upptöku af fundinum að honum loknum á YouTube rásinni.

Hér má nálgast streymið á morgun á YouTube rásinni 

 

Á Morgunkorninu munu Erla Kristín Jónasdóttir og Þórhildur S. Sigurðardóttir segja frá Cycling for Libraries og þriggja landa hjólaferð frá Osló til Árósa í september s.l. Bókasöfnin voru á þriðja tuginn sem heimsótt voru og einnig voru málefni bókasafna, sérstaklega almenningsbókasafna til umfjöllunar.

Þetta verður dulítil ferðasaga með bókasafnsívafi.

Skráning hér.