Morgunkornin eru að þessu sinni í boði Upplýsingar og því frítt fyrir félagsmenn og nema í bókasafns- og upplýsingafræði. Nauðsynlegt er að skrá sig hér. Þau verða að venju í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu og standa frá 8:30 – 9:45 eða í það lengsta til kl. 10:00. Boðið verður upp á morgunsnarl.
Markmið Morgunkorna er að stuðla að umfjöllun meðal félagsmanna um allt mögulegt sem snýr að stéttinni, faginu og starfinu. Og svo auðvitað að skapa aðstæður til að hittast.
Dagskráin er á þessa leið.
kl. Efni
8:45 Örstuttur inngangur
8:50 Ágústa Pálsdóttir, dósent fjallar um starfsheitið út frá námi (og skorarheiti) í bókasafns- og upplýsingafræði
9:00 Óskar Guðjónsson, formaður stéttarfélagsins SBU fjallar um starfsheitið út frá sjónarhorni kjaramála
9:10 Kristín Arnþórsdóttir, nemi í bókasafns- og upplýsingafræði fjallar um starfsheitið út frá sjónarhóli nema
9:20 Hrafnhildur Hreinsdóttir, formaður Upplýsingar gerir grein fyrir lögfræðilegu áliti um notkun starfsheitisins eins og það birtist nú í lögum. Glærur hér
9:25 Umræður