Skráning er hafin á næsta Morgunkorn Upplýsingar sem haldið verður fimmtudaginn 14. apríl nk. kl. 8:30 – 9:45 í Bókasafni Dagsbrúnar, Þórunnartúni 2, 4. hæð. 
Í þetta skiptið mætir Dr. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, til okkar og fjallar um formbreytingu upplýsinga frá prenti til stafrænna forma. Hann fjallar um hlutverk ríkisins í breytingunni, metur hversu langt þróunin sé komin hér á landi, hvað þurfi að gera til þess að ná lengra og fjallar um hvað einkennir upplýsingasamfélag framtíðar. Þá minnist hann á þau markmið sem æskilegt sé að ná með formbreytingunni, lýðræðislega ávinninga af henni og þær hættur sem henni fylgja.
Viðburðurinn á Facebook – ath. ekki er nóg að skrá mætingu á fb viðburði.

Dr. Haukur Arnþórsson birti nýlega fjögurra greina ritaflokk í Kjarnanum þar sem hann fjallar um upplýsingasamfélagið, þær miklu breytingar sem komið hafa fram á skömmum tíma og þessar miklu áskoranir sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir.

Til fróðleiks eru hér tenglar á greinarnar:

1. Réttmætar væntingar
http://kjarninn.is/skodun/2016
-02-18-rettmaetar-vaentingar/

2. Rofin fyrirheit – Ísland í hópi þróunarríkja
http://kjarninn.is/skodun/2016
-02-25-rofin-fyrirheit-island-
i-hopi-throunarrikja/

3. Upplýsingasamfélag framtíðar – Þróun á ábyrgð ríkisins
http://kjarninn.is/skodun/2016
-03-03-upplysingasamfelag-
framtidar-throun-abyrgd
rikisins/

4. Afleiðingar vanrækslu stjórnvalda
http://kjarninn.is/skodun/2016
-03-10-afleidingar-vanraekslu-
stjornvalda/