Upplýsing og Símenntun Háskólans á Bifröst hafa ákveðið að hefja samstarf um símenntun félagsmanna Upplýsingar. Boðið verður upp á námskeið með reglubundnum hætti og verður námsframboðið miðað að þörfum Upplýsingar. Markmiðin með náminu eru að auka þekkingu, hæfni og leikni upplýsingafræðinga til þess að takast á við krefjandi starfsumhverfi og auka samvinnu þeirra í milli. Jafnframt er markmið að þátttakendur fái í hendur að námi loknu verkfæri í starfi og kjarabaráttu.

 

 

Á haustönn verður farið í menningarstjórnun og á vorönn í upplýsingatækni, vefumsjón og notkun samfélagsmiðla.

 

Námið er styrkhæft hjá stéttarfélögum en Upplýsing mun einnig styrkja þá félagsmenn sem ljúka námskeiði um 10.000 kr.

 

 

 

Nánari upplýsingar er að finna hérSímenntun Háskólans á Bifröst