Að venju verður haldið sérstakt Morgunkorn að morgni Bókasafnsdagsins þar sem félagsmenn Upplýsingar og starfsmenn bókasafna koma saman og halda upp á Bókasafnsdaginn, þiggja veitingar og hlusta á erindi í tilefni dagsins.
Við hefjum gleðina á morgunkaffi kl. 8:45 en dagskráin hefst 9:00.
Staður: Bókasafn Mosfellsbæjar
08:45 – Húsið opnar/morgunmatur
8:55/9:00 –Formaður Upplýsingar kynnir
9:00-9:30 – Eva Rún Þorgeirsdóttir flytur erindi tengt þema dagsins
9:30 – Afhending Hvatningarverðlauna Upplýsingar 2025
Morgunkorninu verður streymt á YouTube-rás Upplýsingar.