Aðalfundur Upplýsingar, notendaráðstefna Aleflis og vorgleði verða 30. maí frá kl. 13:00-16:00 í Eddu – húsi íslenskra fræða. Aðalfundur hefst kl. 13:00.

Dagskrá aðalfundar:

a) Skýrsla stjórnar.

b) Skýrslur hópa og nefnda.

c) Reikningar félagsins.

d) Ákvörðun launa og þóknunar til stjórnarmanna.

e) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.

f) Árgjald.

g) Lagabreytingar.

h) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.

I) Kosning skoðunarmanna reikninga.

j) Kosning í fastanefndir til tveggja ára í senn.

k) Önnur mál.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Streymt verður frá aðalfundinum á Teams.

Eftir aðalfundinn blásum við til vorgleði þar sem boðið verður upp á léttar veitingar. Þau sem eru tímabundin geta mætt beint í vorgleðina, en stjórnin vonast þó eftir því að sjá sem flesta á aðalfundinum.

Dagskrá kl. 14 – 15.15:

  • Kjarninn í Gegni   – Sigrún Hauksdóttir, Landskerfi bókasafna 
  • Bókasafnið – rafrænt útgáfa: Hallfríður Kristjánsdóttir ritstjóri
  • Sjálfsafgreiðsla og breytingar hjá Bókasafni Kópvogs – Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðukona
  • Nýtt, þróun, verklag og verkefni  – Helgi Steindal, Landskerfi bókasafna


Léttar veitingar og samvera til kl. 16.

Til að hægt sé að áætla magn veitinga eru gestir vinsamlega beðnir um að skrá mætingu hér fyrir neðan.