Markmið bókasafnsdagsins er tvíþætt:
- Að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu
- Vera dagur starfsmanna safnanna.
Dagurinn okkar
Bókasafnsdagurinn er dagur þeirra sem starfa á bókasöfnunum. Við hvetjum öll bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar til þess að vera með. Ekki gleyma því að njóta dagsins og gera eitthvað fyrir eða með starfsmönnum.
Lestur er bestur
Mikilvægi lesturs og læsis er óumdeilanlegt. Bókasöfnin eru einn af hornsteinum lestrarmenningar Íslands og þess vegna leggjum við áherslu á læsi í slagorði bókasafnsdagsins: Lestur er bestur
Mikilvægi bókasafna þágu vísinda
Bókasafnsdagurinn í ár er tileinkaður vísindum af öllum toga Hvað eru vísindi? Þemanu í ár er sérstaklega ætlað að ná til allra bókasafnstegunda Vísindin eiga heima á bókasafninu.
Dagskrá bókasafnsdagsins 7.september 2018
Morgunkorn á bókasafnsdaginn
Að venju verður haldið sérstakt morgunkorn að morgni bókasafnsdagsins þar sem félagsmenn Upplýsingar og starfsmenn bókasafna koma sama, halda upp á bókasafnsdaginn, þiggja léttar veitingar og hlusta á erindi í tilefni dagsins.
Að þessu sinni verður Morunkornið haldið í sal í Háskóla Reykjavíkur. Þar heldur Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor, erindi í tilefni dagsins.
Við hefjum gleðina á morgunkaffi kl.8:30 en dagskráin sjálf hefst 8:45.
Frekari upplýsingar um morgunkornið, skráning og tengill á streymi af fundinum verður birt hér þegar nær dregur, á Facebook og póstlista Upplýsingar
Viðburðir á bókasöfnum
Rík hefð er komin á að brjóta upp daginn og bjóða upp á einhverskonar uppákomur, viðburði eða sérstaka þjónustu í tilefni af bókasafnsdeginum fyrir gesti safnsins.
Í ár verður leitast sérstaklega við því að safna saman slíkum uppákomum og birta í viðburðarlista á bokasafn.is til þess að auðvelt sé að kynna dagskrá fyrir áhugasömum gestum.
Skoðaðu hugmyndir að viðburðum hér
Vinsamlegast látið vita af þeim viðburðum sem ráðgerðir eru á ykkar söfnum með því að skrá dagskráliði hér. Dagskrá safna verður kynnt almenningi á bokasafn.is
Hvatningarverðlaun Upplýsingar
Hvatningarverðlaun Upplýsingar verða í fyrsta sinn veitt á bókasafnsdaginn 2018. Þau eru veitt starfsmönnum starfsstaða og/eða starfstöðum fyrir einstök verkefni er stuðla að auknu nýbreytni- og þróunarstarfi á bókasöfnum.
Markmiðið með verðlaununum er að:
- Veita bókasöfnum jákvæða hvatningu í starfi.
- Vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fram fer á vegum bókasafna
- Stuðla að auknu nýbreytni- og þróunarstarfi
Framkvæmd hvatningarverðlauna
- Veitt eru ein verðlaun til einstaklings eða stofnunar. Hægt er að veita sérstakar viðurkenningar fyrir samstarfsverkefni.
- Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna einu sinni á ári.
- Tilnefningar berist á sérstökum eyðublaðaformi sem er að finna á vef Bókasafnsdagsins.
- Almenningur og starfsmenn safna geta tilnefnt verkefni til verðlauna.
- Í dómnefnd sitja þrír fulltrúar, einn frá undirbúningshópi Bókasafnsdagsins, einn frá Félagi forstöðumanna almenningssafna og einn frá Upplýsingu.
Vinnureglur dómnefndar
- Við val á verðlaunahafa skal skoða hvernig verkefnið fellur að ofangreindum markmiðum:
- Um sé að ræða nýbreytni- og/eða þróunarverkefni sem ekki telst hluti af daglegu starfi viðkomandi starfsstaðar.
- Verkefnið sé hvatning til eftirbreytni og góðra verka bæði innan viðkomandi starfsstaðar og utan.
- Leitast skal við að veita viðurkenningu fjölbreyttum verkefnum.
Kynning tilnefninga og afhending verðlauna
- Áhugaverð verkefni sem koma til greina til viðurkenningar og verðskulda athygli verða kynnt í aðdraganda Bókasafnsdagsins.
- Verðlaun eru afhent á Bókasafnsdeginum, 8.september. Verðlaunin eru afhent við hátíðlega athöfn á Morgunkorni Upplýsingar. Verðlaun eru veitt í formi verðlaunagrips og viðurkenningarskjals.
Tekið er við tilnefningum til 2.september 2018
Frjálst er að nota kynningarefni fyrir bókasafnsdaginn á öllum miðlum og vefsíðum.
- Merki bókasafnsdagsins
- Vef-, samfélagsmiðlaborðar og myndir væntanlegir í lok ágúst
Sigga Rún
Hönnuður veggspjald Bókasafnsdagsins 2018
Sigga Rún er grafískur hönnuður, teiknari og móðir. „Ég er einnig áhugamanneskja um ímyndunarafl og reyni að gera mistök reglulega. Ég útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2012 og hef starfað sem grafískur hönnuður og teiknari síðan þá.“
Veggspjaldið er innblásið af vísindum Nikola Tesla og „þráðlausu“ ljósaperunni sem hann fann upp.
Bókasafnsdagurinn nýtir samfélagsmiðla til hins ýtrasta til þess að vekja athygli á deginum og starfi bókasafna. Hér má sjá upplýsingar um net- og samfélagsmiðlar sem notaðir verða á vegum bókasafnsdagsins og hvernig söfn geta nýtt sér þá. Það er von undirbúningsnefndar að með samstilltu samfélagsmiðlaátaki muni okkur takast að gera Bókasafnsdaginn og bókasöfnin sjálf sýnileg enda er annað markmið dagsins að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu. Spurningar, tillögur eða annað sem við kemur samfélagsmiðlum og vefjum beinist til vefstjóra.
Taktu þátt á samfélagsmiðlun með því að nota myllumerki dagsins.
#bokasafnsdagurinn
- Facebook: Bókasafnsdagurinn
- Instagram: bokasafnsdagurinn
- Snapchat: bokasafn.is
- Youtube: Upplýsing (streymi af Morgunkorni)
- Twitter: @bokasafnsdagur
- Vefir: Bokasafn.is (notendur) / Upplysing.is (starfsmenn)
- „Hasstögg(myllumerki)“: #bokasafnsdagurinn #lesturerbestur
Við hvetjum alla, unga sem aldna að tengjast á þeim miðlum sem þeir stunda
Hugmyndir af uppákomum á bókasafnsdaginn
- Blása og hengja upp marglitar blöðrur til að skapa stemningu eins og í afmæli
-
Upplestur fyrir börn/fullorðna
-
Hengja upp gátur/spurningar með textum úr bókum þar sem giska á hvaða bók þetta er
-
Bjóða í kaffi og bakkelsi
-
Ljóðaupplestur
-
Bjóða gestum að taka þátt í að skrifa sögu (samskrif)
-
Hafa kynningu á ákveðnum höfundum/bókaflokki
-
Skipuleggja að hafa fundi svo sem bókaklúbba þennan dag
-
Lifandi tónlist
-
Opin námskeið
-
Bjóða gestum í skoðunarferðir „baksviðs“
-
Bókmenntagöngur/bókmenntaumfjöllun
- Skemmtun
-
Starfsmenn mæla með uppáhalds eða að þeirra mati merkilegum fræðibókum
-
Bókapakkar fyrir börn og fullorðna með fræðibókum t.d. „Fróði fræðimaður“ lánar spennandi bókapakka
-
Vísindalegar staðreyndir og/eða fáránlegu fróðleikur prentað út og hengt upp á söfnunum.
-
Auglýsa frí kynningarskírteini
-
Auglýsa og halda örnámskeið á söfnunum á bókasafnsdaginn til að kynna starfsemi safnanna, eins og leshringi o.fl.
-
Nýta sjónvarpskjáina til að kynna safnið eða bækur. T.d. að láta rúlla myndir af skemmtilegum myndum af öllu sem tengist bókum, bóklestri, bókasöfnum, bókaföndri, bókabílum o.s.frv.
- Sérstakar uppákomur/efni á vefsíðu í tilefni dagsins
- Gefa bókamerki / lestrardagbækur
- Lestrarátak á safninu (hvað verða lesnar margar síður inni á bókasafninu á bókasafnsdeginum?)
- Samkeppni um slagorð fyrir bókasöfn
- Gefins bækur (þeir sem hafa sölubás gætu gefið þær þennan daginn)
- Spurningakeppni (ekki pubquiz heldur libquiz)
- Bjóða bæjarráðsmönnum/sveitastjóramönnum í formlega heimsókn
- Setja einhver met innan safnsins
- Brandarakeppni
-
Bjóða upp á að skrifa bréf til bókasafnsins sem hengt verður upp
-
Bjóða viðskiptavinum að koma kjósa 100 bestu bækurnar/ uppáhalds íslensku bókina sína / uppáhalds handbókina
-
Sýning á gömlum munum, bókum og fleiru tengdu fyrri árum bókasafnsins
-
Myndlistasýning
-
Bókmenntagetraun
-
Sektarlaus dagur
-
Viðhorfskannanir
-
Fræðibókaþema, leggja áherslu á fræðibækur og stilla út fræðibókum.
-
Fá bókaútgefanda til þess að gefa verðlaun í happdrætti/spurningaleik
Undirbúningsnefnd Bókasafnsdagsins 2018
Fulltrúi og formaður Upplýsingar
Kristjana MjöllVef- og miðlastjóri Upplýsingar
Óskar Þór Þráinsson