Search

Framtíð Upplýsingar

Segja má að í dag standi Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða á tímamótum. Í vor munum við standa frammi fyrir þeirri áskorun að talsvert mun vanta af fólki í stjórn og nefndir félagsins. Það er áhyggjuefni því síðustu ár hefur orðið erfiðara og erfiðara að manna stjórnir og nefndir félagsins og því þarf að breyta.

Morgunkorn 15. febrúar – Rafbókasafnið

Næsta Morgunkorn Upplýsingar verður haldið fimmtudaginn 15. febrúar kl 8:30 – 9:45 í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík.
Úlfhildur Dagsdóttir, umsjónarmaður Rafbókasafnsins mun fræða okkur um Rafbókasafnið, notkun þess og umsjón.

Dagskrá Upplýsingar á vormisseri 2018

Við höldum áfram að bjóða félagsmönnum og öðru áhugafólki uppá ýmsa viðburði nú á vormisseri. Morgunkornin verða á sínum stað og svo skellum við okkur í vísindaferð og höldum aðalfund. 

Morgunkorn 18. janúar – Landskerfi segir frá stöðu nýs bókasafnskerfis

Fulltrúar frá Landskerfi segja okkur frá ferlinu við undirbúning og framkvæmd útboðs á nýju bókasafnskerfi sem verður arftaki hugbúnaðarins að baki Gegni. Morgunkornið verður haldið fimmtudaginn 18. janúar kl 8:30 – 9:45 í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík.

Næsta Morgunkorn Upplýsingar verður haldið miðvikudaginn 25. október kl 8:30 – 9:45 í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík.

IFLA Global Vision og Upplýsing

Verkefninu, IFLA Global Vision, var hrundið af stað formlega í apríl á þessu ári og í kjölfarið heimsóttu fulltrúar IFLA sex borgir víðsvegar um heiminn og héldu þar vinnustofur þar sem fulltrúar starfsfólks bókasafna frá ýmsum löndum ræddu saman um framtíð bókasafna.

Til hamingju með Bókasafnsdaginn

Bókasafnsdagurinn verður haldinn hátíðlegur föstudaginn 8.september 2017. Í tilefni dagsins munu bókasöfn af öllum gerðum víðsvegar um landið bjóða upp á sérstaka dagskrá í tilefni dagsins. Bókasafnsdagurinn í ár er tileinkaður […]

Fregnir - Fréttabréf Upplýsingar

Skráðu þig í áskrift og fylgstu með því sem er á döfinni hjá félaginu